Sameiningin - 01.04.1907, Síða 8
40
PASSAVANT.
I'yrirlestr, sem dr. B. J. Brandson flutti í Fyrstu lútersku
kirkju í Winnipeg 22. Okt. síöastl.
('Framhald.J
í Júlímánuöi kom Theodor Fliedner prestr frá Þýzkalandi
meö fjóra kvendjákna, sem starfa skyldi undir umsjón Passa-
vants. Var jþá sjúkrahúsiö vígt, og um leið byrjaöi sams-
konar líknarstarf þar eins og þegar haföi rutt sér til rúms á
Þýzkalandi. Undir eins fyrsta áriö veitti spítalinn viðtöku
meir en 300 sjúklingum, og breiddist starfsemin fljótt út til
annarra staöa. Aö fara að lýsa þessu mikilvæga starfi, þrosk-
un þess og útbreiðslu, yrði of langt mál. Aö eins skal þess
getiö, aö nú eru í þessu landi hin svo kölluðu móöurhús djákn-
anna í Philadelphia, Milwaukee, Omaha, St. Paul og fleiri
stcöum, þar sem þessir kvenmenn eru undirbúnir fyrir hiö
göfuga lífsstarf sitt og þar sem þær eiga víst athvarf, ef þær
geta ekki haldið áfram verki köllunar sinnar. Þess er vert að
geta, að engra eiða er af þeim krafizt, og eru þær frjálsar aö
því aö hætta starfi sínu, ef þær óska. Sjaldan kemr það þó
fyrir, aö nokkur þeirra gjöri það. Af þessum svo nefndu
móðurhúsum er hið stœrsta og veglegasta Það, er heitirMary
J. Drexel Home and Motherhouse of Deaconesses í Phila-
delphia. Bygging þess kostaði meir en hálfa milíón dollara og
var gjöf frá John D. Uankman, lúterskum auðmanni í Phila-
delphia, til minningar um konu hans Mary J. Drexel. Sú
stofnun er ekki einungis hin veglegasta á meðal samskonar
stofnana lútersku kirkjunnar, heldr er hún hin stórfenglegasta
stofnun þeirrar kirkjudeildar í Ameríku.
Flestum mönnum myndi hafa fundizt, að þeir heföi œrið
nóg að starfa meö því að hafa með höndum aðal-stjórn ann-
arrar eins stofnunar og spítalans í Pittsburg, auk hinna vana-
legu kennimannlegu starfa í stórum og erviðum söfnuöi, og
enn fremr útgáfu lútersks kirkjublaðs. En um sama leyti sem
spítalinn komst á fót tók Passavant aö vinna aö stofnun heim-
ilis fyrir munaðarlaus börn. Honum sárnaöi aö hugsa til þess,
aö lúterska kirkjan i Ameríku skyldi ekki eiga neina slíka