Sameiningin - 01.04.1907, Page 16
48
manna, sem þeir af alefli eru að leitast viö að leiSa burt úr vill-
unni heim til guðs.
HÆLI FYRIR GAMALMENNI.
Á undanförnum árum hefir þörfin fyrir hæli handa bág-
stöddum gamalmennum af bjóðflokki vorum einatt verið til-
finnanleg. Og eftir því, sem tíminn líbr, kemr þaö skýrar og
skýrar í ljós, aö ef um nokkra verulega líknarstarfsemi er að
rœða meðal Islendinga hér, þá þurfa þeir aS eignast svona
lagaS heimili. MeS þctta fyrir augum hefir kvenfélag Fyrsta
lúterska safnaSar í Winnipeg byrjaS á því aS mynda sjóS til
þessa fyrirtœkis. UndirstaSan var lögS í fyrra meS 50 dollur-
um, og hefir þess áSr veriS getiS í „Sameiningunni”. Nú í ár
bœtti félagiS viS öSrum $50.00, svo nú eru í þeim sjóSi $100.
Einnig vorum vér undirritaSar kosnar til þess aS ávaxta þetta
fé og vekja athygli almennings á málinu.
Leyfum vér oss því hér meS aS skora á velviljaSa og
kristilega hugsandi landa vora, konur jafnt sem karla, aS stySja
fyrirtoeki þetta, svo aS sjóSrinn geti vaxiS sem fyrst.
ÞaS dylst varla neinum, aS þaS er mjög þungt böl aS vera
einmana og hjálparlaust gamalmenni, sem hvergi hefir höfSi
sínu aS aS halla, eftir baráttu liSinna æfiára. Ef annaS eins
hæli og þaS, er fyrir kvenfélagi voru vakir, væri til vor á meS-
al, þá mætti til stórra muna bœta úr böli aldrhniginna brœSra
og systra, sem þannig er ástatt fyrir, meS því aS veita þeim
heimili hjá sínu eigin fólki, þaS sem eftir er æfinnar.
Svo er til ætlazt, aS stofnan þessi, ef hún kemst á fót,
verSi hér í bœ og undir umsjón kvenfélagsins.
Vér sendum þessa áskorun frá oss í drottins nafni, og
biSjum alla, sem hún berst til, aS muna eftir orSunum: „ÞaS,
sem þér gjörSuS einum af þessum mínum minnstu brœSrum,
þaS hafiS þér mér gjört.“
Winnipeg, í Apríl 1907.
Lára Bjarnason,
Hansína Ólson,
Petrína Thorláksson.