Litli Bergþór - 02.03.1987, Qupperneq 11
----- J3/ytu&í <zr/s6Úr//ky
í/'tfL, feffvCtcf<x//-/Z£j'o
& Ært/Ccyjs/uctytCift'.
Eins og flestir hafa oróið varir við
þá hefur staðió yfir skráning á öllum
fornminjum í Biskupstungum sumrin 1985
og 1986. í byrjun árs 1985 sendi
Þjóóminjasafn Islands eyóublöó á alla
bæi i sveitinni, þar sem fólk var
beóió um aö skrá allar fornminjar á
sinni landareign. Flestum óx þetta
mjög i augum, þvi aö á mörgum bæjum er
mikið af fornminjum. Svör bárust þó
frá fjórum bæjum, Stekkholti, Múla,
Heiði og Felli. Flestir fóru þó aó
velta þessum hlutum fyrir sér og voru
margir komnir nokkuö áleióis með aó
fylla út eyóublöóin.
Alls voru skráóar um 1380 minjar i
sveitinni á þremur mánuóum, sumrin
1985-1986. Stærsti hluti þeirra eru
tóftir, sem voru mældar og teiknaðar.
Auk þess voru skráóar sagnir um margar
tóftir sem nú er búið aö slétta út, en
menn mundu eftir. Þar fyrir utan voru
teknar meö gamlar alfaraleióir, vöó á
ám og lækjum, álagablettir, garöar,
vörður og margar sagnir.
Siöastlióið haust var byrjaó aö vinna
úr gögnum. í samráói viö Guðmund
Ólafsson fornleifafræóing á Þjóóminja-
safninu, voru tóftirnar flokkaðar
eftir minjagildi og aldri á eftir-
farandi hátt.
Minjagildi Aldur
A-Mest minjagildi 1-fyrir 1000 e.Kr.
B-Mió1.minjagildi 2-1000 1550 e.Kr.
C-Minnst minjag. 3-1550 1800 e.Kr.
4-1800 1987 e.Kr.
Minjagildi tófta fer eftir því um
hvers konar tóftir er aó ræóa, t.d.
eru bæjarhús merkilegri en útihús.
Þjóöminjasafnió flokkar eftirfarandi
minjar nær undantekningalaust í A-
flokk: Álagabletti, forn bæjarstæöi,
minjar tengdar trúarathöfnum s.s.
hof, bænhús og kirkjur. Einnig staói
þar sem liklegt er aó finna líkams-
leifar manna s.s. kirkjugaróa, gras-
reiti, kuml og dysjar. Einnig er litiö
á hve tóftin hefur varóveist vel og
hvort hún sé vel hlaóin.
Oft var erfiðara aó segja til um
aldur tófta. Flestir vissu um aldur
tófta sem hlaónar eru á þessari öld og
um sumar þær eldri eru til ritaðar
heimildir. Ekkert er vitaö um aldur á
nokkrum hluta tóftanna, en oft má gera
sér einhverjar hugmyndir um aldur út
frá útliti.
Markveröar minjar í Biskupstungum
(A-flokkur).
Með þessari greinargeró fylgir skrá
um minjar í Biskupstungum sem lentu
i A-flokki (140-150 minjar), en þær
minjar telst ástæóa til aó varóveita
og jafnvel friólýsa rargar þeirra.
Þaó er æskilegt ac' i hverri sveit
séu varóveittar minjar af sem flestum
tegundum, þó aö sumar þeirra séu ekki
mjög gamlar. Einnig þótti ástæóa til
aö velja nokkur svæöi til friðunar.
Hér á eftir verður reynt aö gera
grein fyrir markveróum minjum i
Biskupstungum og af hverju þær voru
valdar.
LB tók sér það Bessaleyfi aö sleppa
þeirri skrá þvi i henni kemur fram þaó
sama og hér að neðan.
ARNARHOLT. Þar eru hlóóir nióur
undir Arnarholtsvatni, sem notaóar
voru til ullarþvottar og eru einar af
fáum slikum sem eftir eru i sveit-
inni. Þar er einnig eftir nokkuð af
gömlum túngarói.
AUSTORHLÍÐ. Stuttu ofan viö kirkju-
garðinn i Hliðartúni er leiói sem
ekki má slétta út. Þar á smali aó
hafa oróió úti meö hund sinn og fjár-
hóp. Þar eru þrjú litil leiói, sem
eru fyrir smalann, stafinn hans og
hundinn. Vió hlióina er mikið stærra
leiði, sem er fyrir fjárhópinn.
ÁSAKOT. Stuttu noröan viö útihúsin i
Ásakoti er hóll, þar sem peningar
eiga aö vera grafnir. Ef aó grafió
er i hólinn, á bærinn i Bræðratungu
aö standa i björtu báli. (Þessu
hefur örugglega verió komið á, til aó
óöalsbóndinn i Bræóratungu niddist
ekki um of á hjáleigubændunum i
kring).