Litli Bergþór - 02.03.1987, Blaðsíða 22

Litli Bergþór - 02.03.1987, Blaðsíða 22
6/ '£/H4 *n/r' jy* ''putÚ Sköyrazkt. Skógræktarfélag Árnesinga samanstendur af allmörgum deildum, sem ýmist eru skógræktarfélög, kvenfélög eóa ung- mennafélög, en einstaklingar hafa aldrei verió teknir i félagió. Þaó hefur leitt af þessu deildafyrirkomu- lagi, aó ekki hefur verió til félaga- skrá, en talió aó félagarnir væru 612. Stjórn félagsins hefur oft á undan- förnum árum rekist á ýmsa annmarka við svona tilhögun. Þaó er t.d. töluvert um aó fólk vill ganga í skógræktar- félag, en hefur ekki áhuga á starfi i kvenfélagi eóa ungmennafélagi. Eóa þá aö þaö félag sem fólk er starfandi i er ekki deild i Skógræktarfélagi Árnesinga. Á fundi á Selfossi 22.jan. sióast- liöinn þar sem stjórn félagsins'ásamt formönnum flestra deilda ræddi þessi mál itarlega, kom m.a. fram aó á árs- fundi Skógræktarfélags íslands 1986 var ákveðiö aó hækka árgjöld úr 7 kr. i 50 kr. Skógræktarfélag Árnesinga hefur ætið greitt þessi gjöld án þess aö rukka deildirnar, en viö þessa hækkun er tæp- lega hægt aó komast hjá þvi. Á fundinum á Selfossi kom einnig fram, aó i Hrunamannahreppi tók nýstofnaö skógræktarfélag viö starfsemi skóg- ræktarnefnda i ungmennafélagi og kven- félagi um leið og þær voru lagóar nióur. Þá hefur lika veriö stofnað skógræktar- félag i Grimsnesi meö þátttöku fólks úr Þingvallasveit og Grafningi. Félagar úr þessum sveitum eru mjög ánægó með þetta nýja fyrirkomulag. Þessi félög hafa látið til sin taka ýmis umhverfismál önnur en beina skógrækt, t.d. hefur Grimsnesfélagió lagt sérstaka áherslu á umhverfi Ljósafossskóla. Þá mun undirbúningur hafinn aó stofnun skóg- ræktarfélaga á fleiri stöóum. Ekki voru talsmenn allra ungmenna- félaga i sýslunni sáttir vió aö þeirra félög hættu þátttöku i skógrækt og jafnvel afhentu nýjum skógræktar- félögum eignir sinar. Þeir töldu aó stofna mætti sérstakar skógræktar- deildir i félögunum sem kysu sér sinar eigin stjórnir og hefóu sjálf- stæóan fjárhag. Þá þyrfti fólk aó ganga sérstaklega i skógræktardeildir ungmennafélaga og þær væru opnar þeim sem ekki vildu vera i ungmennafélögum aó öðru leyti. Menn ættu aö leióa hugann aö þessum málum fram aö aðalfundi U.M.F.Bisk, eóa hvort ætti aó stofna sérstaka deild innan félagsins, sem einnig væri opin öllum áhugamönnum um skógrækt. Eöa i þriója lagi aö stofna sérstakt skógræktarfélag. (j'tu-mcJ' 'JómclSS. 7//'2//s/c//2/7s/Pct. TILBOÐ ÓSKAST 1 FffiÐI FJALLMANNA HAUSTIÐ 19 8 7 UPPLÝSINGAR GEFUR GJALDKERI RÓBERT Á BRÚN, Á KVÖLDIN SÍMI 6888 SKRIFLEGT TILBOÐ SENDIST TIL RÓBERTS FYRIR: 15. APRÍL 1987 Pver/<$ txðí /j/ens Péturs. HEF OPNAÐ RAFMAGNSVERKSTffiÐI í GAMLA LffiKNISHÖSINU 1 LAUGARÁSI. TEK AÐ MÉR ALLAR RAFLAGNIR - SMÁAR OG STÓRAR - HEF ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI HELSTU SMÁVÖRUR TIL RAFLAGNA. SÍMATÍMI KL. 8-9 Á MORGNANA SÍMI 6845

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.