Litli Bergþór - 02.03.1987, Síða 14
SKÁLHOLT. Þorláksbúð, Jólavalla-
garóur, Þorlákssæti, íraleiði,
Staupasteinn og Skólavarða voru
friðuð fyrir. Vió það bætast nú
allar eldri útihúsatóftir á landar-
eigninni. Fyrst ber að nefna 3 fjár-
borgir, misgamlar, í Borgarhólnum,
sem eru nokkru vestan vegar þar sem
beygt er niður aó sumarbúðum. í
Torfholti, sem er klettaholt niður
undir Hvítá, eru nokkrar fornar
tóftir nánast á árbakkanum. Nokkru
ofan vió þær er mikið og fornt garó-
lag, sem nær yfir holtiö. Lengra
niöur meó Hvítá, á árbakkanum, þar
sem heitir Stekkatún, er mikið af
útihúsatóftum og margir garóar i
kringum þær, og margir þeirra fornir
aó sjá. Rétt ofan við Skálholts-
tunguna, nokkru ofan vió Þorlákshver,
en aóeins neðan við fjárhústóftir vió
Hestaklett, liggur forn garður þvert
yfir tunguna frá Brúará í Hvítá. Auk
þess eru Virkishóll, Kyndluhóll ,
Austurtraðir og Biskupatraóir frið-
aðar.
SPÓASTAÐIR. Á Smalaskálaholti, sem er
holtið vestan við Smalaskála, eru
fjórar fjárborgir, ásamt tóftum og
miklu garðlagi í kringum hluta þeirra.
Við Smalaskála er ein fjárborgin til,
ásamt beitarhúsi sem rifiö var 1949.
Hugmyndin er aó friöa svæóið sem eina
heild, því vafalaust tengist það búskap
á biskupsstólnum í Skálholti.
SYÐRI-REYKIR. Hulduhóll á Byrgistanga
og Álfhóll í Reykjagili, eru álagahólar
sem ekki má hreyfa vió. Einu sinni sló
afi Grims ögmundssonar Álfhólinn og það
haust vantaði 18 kindur af fjalli.
Suóaustan undir Arnarhól, er bæjarstæði
hjáleigunnar Arnarhóls, sem byggð var
um 1675. Þetta er heillegt bæjarstæði
en nokkru vestan vió það er mjög forn
ferhyrndur garður, en þagar gamli
vegurinn var lagóur hefur ein hlið
garósins eyðilagst. Heiðarhús er jötu-
hús uppi á Torfastaóaheiði, hlaðió um
1886, og er þar mjög heilleg grjót-
hleösla.
TJÖRN. 1 Kotsholti og Stekkatúni eru
tóftir sem liklega hafa verió stekkir,
en frekar litió er nú eftir af stekkjum
i sveitinni.
TORFASTAÐIR. Allnokkru neóan við
Reykjavallarétt er hjáleigan Múlatún.
Hennar er fyrst getið i landamerkja-
bréfi Torfastaóa frá 1456, en tóftir
eru nokkuð heillegar enn.
ÚTHLlÐ. Steinageröi var forn smábýli
nióur undir Andalæk. Engar sagnir
eru til um það, en þarna eru nokkrar
tóftir. 1 garöinum i Úthliö er varð-
veittur hlautbolli Geirs goða og rétt
ofan við garóinn er leiói Geirs goóa.
Sunnan og neóan við bæinn er kirkju-
garðurinn, en nokkru neóan við hann
eru hof og fleiri tóftir.
VATNSLEYSA. Þau álög eru á Vatnsleysu-
gili, aó ekki má veióa i þvi fyrir
norðan bæinn. Ef þaó er gert á bóndinn
á Vatnsleysu að missa sem svarar einu
kúgildi. Þetta hefur tvisvar verið
reynt og komió fram i bæói skiptin.
Skröggur er stór varóa, uppi á Hliðinni
og er talin hafa verió hlaðinn til aó
auóvelda Hliðamönnum aó rata að bænum,
þvi þaðan frá séð er bærinn i hvarfi
við Hliðina. Sagt var, aó þeir sem
héldu Skröggi vel vió, yróu vel efnum
búnir.
VEGATUNGA. Rétt neóan vegar var eina
rjómabúið i sveitinni og ber þvi að
vernda allar tóftir og stiflumannvirki
er tengjast þvi. BuiO var reist upp
úr aldamótunum og liklega notaó fram
á 3.áratuginn.
Fornleifaskráningin er hluti af-
samnorrænu verkefni þar sem verió er
aó kanna hvernig hentugast sé að
skipuleggja stór svæói, s.s. heilar
sveitir (svæðaskipulag). Við slika
skipulagningu þarf m.a. aó taka til-
lit til gróðurfars á svæðinu og forn-
minja. Athuganir á svo stórum sveit-
um hafa ekki verið gerðar áóur hér-
lendis. Biskupstungur eru fyrsta
tilraun til þess og valdar meó það i
huga, aó hér er mikið af sögufrægum
stöðum.
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
hefur séó um þann hluta verkefnisins
sem tengist gróðurfarinu i sveitinni.
Þeir eru nú aó vinna gróóurkort af
sveitinni og er hugmyndin aó tóft-
irnar verði færóar inn á þau.
Enn er eftir að mæla tóftir á 3
bæjum, Drumboddsstöðum, Borgarholti
og Króki, en Einar Sæmundsen, yfir-
umsjónarmaóur verkefnisins, mun ljúka
þvi næsta sumar. Til að fá einhverj-
ar tóftir af þessum bæjum á kortið,
tókég þær meó sem getió er i örnefna
sk :á .
pó aó þessu verkefni sé nú form-
lega lokió, þá veit ég að nokkuð er
enn eftir af tóftum og sögnum ó-
skráður i sveitinni. Ég mun þvi
áfram hafa hjá mér skráningarbækur,
þvi það er aldrei of seint aó bæta
við vitneskju um tóftir eöa sagnir.
Ég hef einnig tekið eftir þvi aó
nokkuó vantar á að öll örnefni séu
komin á skrá hjá örnefnastofnun og þá
sérstaklega nöfn á tóftum.