Litli Bergþór - 02.03.1987, Síða 20
Guðmundur bjó ókvæntur með móður
sinni aldraðri um þessar mundir, í
litlu steinhúsi, aó mig minnir, sem
enn var nefnt Skólabær. Hann var
einrænn og hlédrægur, góðmenni meó
barnssál. Hann fór allra sinna
feróa á reióhjóli. Sumir sögóu aó
honum þætti sopinn góöur, en ég vaið
aldrei var, aó hann heföi nema eina
ástríóu eóa hugsjón. Hann var þaó,
sem kallað var KR-ingur, fram i
fingurgóma og allar tiu tær. Ég held
hann hafi sótt alla kappleiki á Mela-
vellinum af hreinni dyggö og talió
þaó skylduverk. Vió áttum mikið
saman aó sælda viö gröftinn, og fór
vel á meó okkur.
Hansina J. Wium er nú ein á lifi af
þeim, sem nefndir eru i fundargeró-
inni frá páskum áriö 1928, og mun nú
komin yfir áttrætt. Hún lauk kennara-
prófi frá Kennaraskóla islands, en mun
einnig hafa lært aó leika á harmónium.
Gat hún sér mjög gott orð sem kennari.
Hún giftist Hafsteini Guömundssyni,
járnsmið. En sonur þeirra er Guómund-
Hafsteinsson, veóurfræöingur, sem
hvert mannsbarn á íslandi kannast vió
úr sjónvarpi.
FASTIR FUNDIR
HREPPSNEFNDAR ERU ANNAN MIÐVIKU-
DAG HVERS MÁNAÐAR (NEMA JÚLÍ OG
ÁGÚST) OG HEFJAST KL. 2°°
EFTIR HÁDEGI.
FUNDIRNIR ERU OPNIR, NEMA
ANNAÐ SÉ ÁKVEÐIÐ.
DAGSKRÁ LIGGUR FRAMMI 1 ARATUNGU
TVEIMUR DÖGUM FYRIR FUND.
0 D D V I T I
Op/cf mánudaga,
m/ðtr/kuc/apa op
föstuc/apa /</. /3 - /5".
LANDSBANKI ÍSLANDS
AFGREIÐSLA REYKHOLTI