Litli Bergþór - 02.03.1987, Side 23

Litli Bergþór - 02.03.1987, Side 23
21 / vtit €ý u/n^UsT'- Stundum þegar ég er aö forvitnast um það hjá barnabörnum mínum, hvað þau hafist að þessa og þessa stund- ina, við sitt grunnskólanám, sýna þau mér ósköpin öll af ýmiskonar^ námsbókum, ritgerðum, teikningum, línuritum og hvaö þetta heitir nú allt saman. Þar að auki er svo handavinna, sem nú heitir reyndar handmennt, söngur og leikfimi. Svo er stundum til viðbótar einhvers konar tónlistarnám. Allt þetta verða þau aó ganga i gegnum og stunda af alúó, ef vel á aö fara, þar til loks aó lokaprófi kemur og þau ganga til fermingar eða "ganga fyrir gafl" eins og stundum var sagt i gamla daga. Mig langar að segja hér örlitið frá minu barnaskólanámi. Þaó varð samtals 3 1/2 mánuóúr. Átti upp- haflega að vera aöeins 1/2 mánuö, en þetta átti eftir aó breytast eins og siðar veróur sagt frá. Steinunn á Spóastöðum kenndi mér heima, en þaó var meira og minna i molum, svo ekki sé meira sagt, sökum annrikis þar sem hún var bæöi bónd- inn og húsfreyjan og hafði þvi i mörg horn aö lita. Hún hafði tekió kennarapróf árió 1906 frá Flensborg i Hafnarfirói. Við skólann þar var svokölluð kennaradeild og skóla- stjóri var Jón Þórarinsson, siðar fræóslumálastjóri. Þá var ekki búið að stofna Kennaraskóla islands, en hann var settur á stofn árió 1908. Fyrsti skólastjóri þar og næstu 20 árin, var séra Magnús Helgason frá Birtingaholti, þá prestur á Torfastöóum. Eftir aö Steinunn lauk kennara- prófi var hún heimi1iskennari i Hrunamannahrepp m.a. i Hruna, Hrafnkellsstöóum, Birtingaholti og ef til vill vióar. Rofnaöi aldrei sú mikla vinátta milli hennar og þessara heimila meöan hún lifði. Eins og áður sagði, naut ég upp- fræóslu heima og nú leið að þvi, að ég skyldi fermast vorió 1919. á var farkennari i Biskupstungum Sigurður Greipsson siðar skólastjóri i Haukadal. Ha,in jsenndi tvo vetur i Biskupstungum 1917-19 og einn vetur nokkru sióar. Liklega hefur Steinunn ekki verið alveg örugg með þennan nemanda sinn, að hann stæðist full- naðarpróf og hægt. yrði að koma á hann fermingu. Nióurstaðan varð þvi sú aó senda nú þennan vonarpening til Siguróar eins og hálfsmánaöar- tima og fá hans umsögn um drenginn. Siguróur kenndi þá i Höfóa. Og af^ þvi þetta var nú um hávetur, var mér komið fyrir i Hrosshaga hjá þvi elskulega fólki, sem þar var. Þaóan var miklu styttri leið að Höfða og greiðfærari. Ekkert veit ég um um- sögn Sigurðar um þennan vesalings dreng, en liklega hefur þetta verió nokkurn veginn i lagi. Að minnsta kosti átti ég ekki aö fara i skóla meir, en hyggja nú eingöngu aó ferm- ingunni og undirbúningi hennar. En þetta átti nú heldur betur eftir aó breytast, eins og siöar verður sagt frá. Heimilisfólkió á Sþóastöðum átti á þessum árum margra kosta völ, ef þaó óskaði að fara til kirkju. Þar var um aö ræóa hvorki meira né minna en þrjá presta, sem allir voru á næstu grösum. Þeir voru: séraEirikur á Torfastööum, séra Brynjólfur á Ólafsvöllum messaói i Skálholti og þangað áttum við kirkjusókn. Og svo var séra Gisli Jónsson á Mosfelli, og þó að Brúará væri á milli, var ferju- bátur til taks og stutta bæjarleió að fara. Ekki held ég aó vió höfum getaó kallast kirkjurækin, hvorki fyrr né sióar, þó aó stutt væri aö fara og eins og áður sagói, margra kosta völ. En svo frásögninni sé haldió áfram, þá kemur þaö i ljós einhvern tima fyrir áramótin 1918-1919, aö engir, sem áttu börn á fermingaraldri i Skálholtssókn vildu_láta séra Brynjólf ferma börn sin þetta vor. Ég var þvi eina barnió, sem til greina kæmi aö fermt yrði i Skálholti Nióurstaðan varó samt sú, að fyrst ég væri einn á báti hvað þetta snerti, væri þetta svolitið einmanalegt fyrir mig. En það fullyrói ég aö ekki^var þetta af neinni andúö eða óvild i garó prestsins.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.