Litli Bergþór - 01.12.1991, Blaðsíða 5
Hvað segirðu til?
Úr réttunum
Vatni var hleypt á hitaveituna „Brúna" í
haust. Kom þá heitt vatn á eina 10 bæi, sem
ekki höfðu haft það áður.
Grímur Ögmundsson á Syðri-Reykjum
andaðist 1. júlí og Elín Guðrún Ólafsdóttir í
Austurhlíð 30. september.
Hér verða sagðar helstu almennar fréttir úr
sveitinni svona um það bil frá Jónsmessu til
vetrarbyrjunar.
Veðurfar hefur verið gott, einstaklega hlýtt
til að byrja með og þurrviðrasamt, þó skúrir
færu að angra þá er við heyskap voru að fást
þegar kom fram í júlí. Spretta var mjög góð
bæði á túnum og útjörð og vöxtur í
matjurtagörðum og trjávöxtur með mesta móti.
Mikið af heyi var sett í rúllur. Haustið hefur
verið fremur hlýtt og hófleg úrkoma.
Hópur sjálfboðaliða vann við trjáplöntun og
uppgræðslu í Rótarmannagili dagstund um
miðjan júlí. Nemendur Reykholtsskóla
plöntuðu þar einnig trjám í október.
Refaveiðar báru töluverðan árangur.
Grenjaskyttur unnu 5 greni. Þrjú þeirra voru
í byggð. Við greni í landi Spóastaða unnust
3 fullorðin dýr og 4 yrðlingar. Á Tjarnarheiði
voru skotin 2 fullorðin dýr og 4 yrðlingar
náðust. ÍHáfjalli ílandiGýgjarhólskotsfannst
greni. Þar unnust 2 fullorðin dýr en yrðlingar
voru taldir það ungir að þeir komu ekki út. í
Nátthaga á Haukadalsheiði vannst 1 fullorðið
dýr og 3 yrðlingar. Fimmta grenið var
Hrefnubúðargreni í Kjalhrauni. Þar unnust 2
fullorðin dýr og 4 yrðlingar. Að auki er vitað
um að ein 3 hlaupadýr hafi verið drepin á
árinu.
Sjálfboðaliðar byggðu hesthús rétt við gamla
ferjustaðinn á Hvítá fyrir innan Bláfell. Er það
all háreist hús, 15 m langt og 6 m breitt, byggt
á steinstólpum úr járnklæddri timburgrind.
Allmikil breyting var gerð á tilhögun fjallferða.
Fyrstu leit var flýtt og var farið til fjalls
miðvikudaginn í 19. viku sumars.
Tungnaréttardagur var 11. september.
Eftirsafn var nú aðeins tveggja daga leit á
Framafrétti. í þriðju leit var farið 5. október.
Nokkrar kindur hafa verið sóttar í afrétt á milli
leita og eftir þær.
Bandaríski herinn var með heræfingar ofan
við byggðina í uppsveitum Árnessýslu um
mánaðamótin júlí - ágúst. Höfðu þeir
olíubirgðastöð við flugbrautina á
Einholtsmelum. Af þessu tilefni stóðu
herstöðvaandstæðingar fyrir mótmælafundi
við Tungnaréttir að kvöldi 29. júlí.
Eitt íbúðarhús var tekið í notkun í Laugarási
og í Reykholti var flutt inn í tvær
kaupleiguíbúðir og eina að auki í sama húsi
byggða af eigendum. Þar er verið að leggja
grunn að öðru samskonar húsi. Allmikið
hefur verið byggt af sumarhúsum á ýmsum
stöðum í sveitinni.
Hesthús byggt við Hvítá
A.K.
Litli - Bergþór 5