Litli Bergþór - 01.12.1991, Blaðsíða 10
nýta vetrðrbeit sem best. Þegar Björn og
María hófu búskap í Skálholti 1950 voru
. þessi hús ásamt því í Tungunni notuð og var
snúnjjagasamt að sinna þessu. Um sauðburð
þurfti að fara á báða staðina a.m.k. tvisvar á
dag og kom sér þá vel að vera þokkalega
ríðandi ef ekki átti að fara í þetta allur dagurinn.
4. í Skálholtstungu.
Vilji menn ríða niður í Skálholtstungu er
farið niður veginn sem liggur að sumarbúðum
kirkjunnar austan við fjárhús Björns bónda. Á
móts við sumarbúðirnar er hlið sem þarf að
fara í gegnum. Nú tekur við vegur sem liggur
niður að Þorlákshver en þar er tekið vatn til
upphitunar í Skálholti. Yfirfallslækurinn hefur
stundum verið notaður til baða en er nokkuð
grunnur fyrir minn smekk. Á leiðinni niður að
hver má sjá austan vegar, nokkru neðan
hliðsins, dálítið rót. Þetta eru einu minjarnar
um búnaðarskóla Suðurlands sem ætlunin
varað reisa þarna. Útsýni ermikið úrtungunni
og fagurt og hefði skólinn sómt sér vel þarna.
Þar sem slóðin beygir niður að hvernum má
sjá rústir af fjárhúsum. Þar heitir Bolhaus en
þau voru tvö í Tungunni fyrr á tíð fjárhúsin.
Upp með bakka Brúarár vestan í Tungunni
heita Mosar og voru þar slægjulönd áður, en
nú gengur þar hrossastóð Skálholtsbónda.
Á haustin má oft sjá þar falleg folöld. Hægt er
halda lengra niðurTunguna, því frá hvernum
er slóð sem nær niður að veiðihúsi á
austurbakkanum og landgræðslugirðingu
sem nær þvert yfir T unguna neðanverða, en
töluverður uppblástur er af áreyrunum neðst
í Tungunni. Ekki er hægt að ríða lengra
nema hafa lykil að lás á hliðinu á þessari
girðingu sem hægt er að fá hjá ábúanda ef
um semst. Grösugterþarnaog mikiðfuglalíf
og er þessi reiðleið mjög vinsæl hjá þeim
sem hafa farið hana, en u.þ.b. klukkutíma
reið er úr Laugarási að hvernum.
Allar eru þessar leiðir auðfarnar og voru
mikið notaðarfyrir daga bílsins. Nú á dögum
skurða og girðinga er hætt við að margar
gamlar leiðir týnist og væri þarft verk hjá
þeim sem enn muna að setja nokkrar línur á
blað um hvar þær voru.
Vil ég að lokum óska fólki góðrar ferðar
þegar ríða á þessar fögru og skemmtilegu
leiðir en biðja menn að athuga að ekki spillir
að hafa leyfi til farar og að hliðum á loka á
eftir sér.
P.S.
r
-----------------------------—I
Bjarnabúð Brautarhóli j
sími 98-68864
BENSÍN, OLÍU 0G FERÐflUÖRUR.
MRTUÖRUR.
EINNIG ÖL, TÓBRK, SŒLGfETI 0G VMISLEGT FLEIRfl.
LUKKUMIÐRR 0G L0H0 5/38
^ 1. júní-31 ágúst:
P
J 1. sept. - 31 maí
íi
10-22 alla daga '
10-18 mánud. - föstud. J
11 -18 laugard. - sunnud. íj
L
J
Litli - Bergþór 10