Litli Bergþór - 01.12.1991, Blaðsíða 14
íþróttir U. M. F. B íþróttir U. M. F. B
Frá íþróttadeild U.M.F. Bisk.
Mig langar í stuttu máli að nefna það helsta
sem á daga okkar hefur drifið í sumar.
Við fórum á íþróttahátíð H.S.K. sem haldin
var á Hvolsvelli í lok júní. Þangað fórum við
með hóp af ungu fólki til keppni sem stóð sig
með ágætum, bæði í frjálsum og sundi.
Auðvitað áttu einstaklingarnir misjafna daga,
en við ætlum að reyna að geta árangurs
hvers og eins í ársskýrslu deildarinnar. Eitt er
það sem ég þori næstum að fullyrða að við
Tungnamenn eigum met í, á þessari H.S.K.
hátíð, en það er mæting foreldra. Það er eftir
þvítekið á mótum innan H.S.K. hvað það eru
margir foreldrar í Tungunum. Það er engin
spurning að það getur haft mikil áhrif hjá
ungum keppanda, að hafa foreldri nálægt
þegarmestríðurá, hvortsemþaðeríupphitun
fyrir keppni, fagna sigri eða taka á móti ósigri.
Vil ég notatækifærið hér og þakka öllum þeim
foreldrum sem hafa séð sér fært að koma
með okkur á mót, eða starfað með okkur á
mótum, sem við höfum staðið að.
í sumar var fótboltaáhuginn í algleymingi.
Helgi í Hrosshaga var með æfingar fyrir tvo
aldurshópa, en hámark boltans var keppni
við Hrunamenn, bæði heima og að heiman.
Við höfðum betur í þessum leikjum. Þeir
fullorðnu voru einnig með æfingar en engan
sérstakan þjálfara. Þeir kepptu síðan við
Grímsnesinga og unnu þá.
Þriggjafélagamótið í frjálsum héldum við í
júlí í alveg frábæru veðri og tókst það með
ágætum, en Laugdælir unnu mótið.
Innanfélagamót í frjálsum var haldið í lok
ágúst, en því var gerð góð skil í fréttabréfinu.
Okkar fólk hefur einnig farið víða í sumar
og keppt fyrir hönd H.S.K. og gert góða hluti.
Nú eru byrjaðar inniæfingar í frjálsum hjá
Óla þjálfara, en það koma um 40 krakkar í
tveimur aldurshópum. Á því sést hvað
íþróttirnar skipa háan sess hjá krökkunum.
Vonast ég síðan eftir góðu samstarfi bæði
við krakka og foreldra á komandi vetri.
F.h. íþróttadeildar,
Áslaug Sveinbj.
Unglingamót H.S.K. í sundi 30.okt. 1991
100m skriðsund 13-14 ára
Böðvar Þór 5. sæti 1.16.6.
100m baksund 13-14 ára
Kristján Traustason 3.sæti 1.45.6.
Böðvar Þór 4 sæti 1.51.8.
100m bringusund 13-14 ára
Stígur Sæland 3sæti 1.30.0.
Ólafur Loftsson 5 sæti 1.43.8.
50 m bringusund 12 ára
Jónas Unnarsson 6 sæti 51.0
Guðni Þáll 7. sæti 53.6
Axel Sæland 9. sæti 56.40
Guðjón Smári 14. sæti 58.8
50 m skriðsund 12 ára
Jónas Unnarsson 1 .sæti 37.8
Guðni Þáll 6. sæti 43.4
Þorvaldur Skúli 7. sæti 43.8
Guðjón Smári 11. sæti 47.6
Axel Sæland 13.-14. sæti 49.7
50 m baksund 12 ára
Jónas Unnarsson 1. sæti 48.6
Guðjón Smári 4. sæti 55.8
Guðni Þáll 6. sæti 59.8
50 m bringusund 12 ára
Þetra Marteinsdóttir 10. sæti51.1
Guðrún Unnarsdóttir 16. sæti 55.9
Veronika Carstensd. 17. sæti 57.2
Þórey Helgadóttir ógilt.
50 m skriðsund 12 ára
Þórey Helgadóttir 10. sæti 46.5
Þetra Marteinsd. 11-12. sæti 47.0
50 m baksund 12 ára
Þórey Helgadóttir 7. sæti 57.9
Petra Marteinsdóttir 8. sæti 1.01.7
Guðrún Unnarsdóttir 9. sæti
1.09.0
Veronika Carstensdóttir ógilt.
Yngra fótboltaliðið eftir sigur á Hrunamönnum
Aftari röð: Böðvar, Guðni Páll, Axel, Ólafur Lýður, Hilmar og Ketill
Fremri röð: Rúnar, Róbert Gauti og Ivar
Litli - Bergþór 14