Litli Bergþór - 01.12.1991, Blaðsíða 6
M-hátíðarpistill
Þegar þessi Litli-Bergþór lítur dagsins Ijós, hefur M-
hátíð á Suðurlandi væntanlega runnið sitt skeið, en
henni verður slitið í Vík í Mýrdal sunnud. 17. nóv. '91.
Þá hefur hún staðið í rétta 8 mánuði, frá því hún varsett
á Selfossi 16. mars s.l.
M-hátíð (M stendur fyrir orðin mál, mennt og
menning) hefur nú verið haldin í öllum landsfjórðungum
í samvinnu við menntamálaráðuneytið. Markmið
hennar er að vekja athygli á menningarstarfseminni,
sem stunduð er vítt um landið og ýta undir hana og það
hefur tekist að mínu mati. Þær raddir hafa heyrst að
menninghljóti aðveraeitthvað “hátíðlegtog leiðinlegt”,
en auðvitað er það tómur misskilningur. Menning er
það þegar fólk gerir eitthvað skapandi, sjálfum sér og
öðrum til gagns og skemmtunar. Og það gerum við
dags daglega hér í sveit sem annarsstaðar. Tökum
þátt í félagslífi og listum, hvort sem það heita
íþróttaæfingar, hestamennska, kórsöngur, leiklist,
lestur góðra bóka, hljóðfæraleikur af ýmsu tagi eða
annað. Aðalatriðið er að vera að gera eitthvað sjálfur,
láta ekki sjónvarpið og aðra afþreyingu um að eyða
tíma manns.
Mér þykir rétt að gera hér aðeins grein fyrir því
hvernig M-hátíðarstarfið fór af stað og því helsta sem
gert var í uppsveitunum á M-hátíðarárinu.
Til að undirbúa M-hátíðina, tilnefndi hver sveitarstjórn
á Suðurlandi einn fulltrúa í M-hátíðarnefnd og var
undirrituð tilnefnd fyrir Biskupstungur haustið 1990.
Síðan réðist það eftir aðstæðum, hvort hrepparnir
stóðu einir að menningardágskrám eða slógu sér
saman. Uppsveitir Árnessýslu ákváðu að standa
saman að dagskrá, en svæðið reyndist of stórt og
fjölmennt, svo því var skipt um Hvítá. Hrepparnir
vestan Hvítár: Biskupstungur, Laugardalur, Grímsnes,
Grafningur og Þingvallasveit héldu kvöldvöku í
Aratungu, en Hreppa-og Skeiðamenn íÁrnesi. Báðar
kvöldvökurnar voru 12. apríl.
Á kvöldvökunni í Aratungu sungu þau Guðmundur
Gíslason, Elín Gunnlaugsdóttir og Ingunn
Sighvatsdóttir einsöng, Söngkór Miðdalskirkju söng
og einnig kom fram samkór úr öllum sveitunum fimm
undir stjórn Jónínu Guðrúnar Kristinsdóttur frá
Laugarvatni. Helga Sighvatsdóttir og Linda
Hreggviðsdóttir léku á blokkflautur, Eyvindur
Erlendsson flutti valin brot úr skáldskap heimamanna
M hátíðanefnd uppsveitanna
Heimir Steinsson Geirþrúður Sighvatsdóttir, Garðar
Vigfússon, Halla Guðmundsdóttir, Guðrún
Sveinsdóttir og Kristinn Kristmundsson
fyrr og síðar og ungir glímukappar úr Laugardal og
Grímsnesi sýndu listir sínar undir stjórn Kjartans
Lárussonar. Dagskránnilauksvomeðharmóníkuballi.
Fyrir kvöldvökuna var sett upp falleg myndlistar- og
heimilisiðnaðarsýning í Aratungu, með verkum eftir
heimafólk úr hreppunum fimm og stóð sú sýning í
rúma viku.
Þann 21. apríl var M-hátíð barnanna í Aratungu, þar
sem börn úrgrunnskólunum í Reykholti, Ljósafossi og
Laugarvatni komu fram með ýmis skemmtiatriði.
Jónína Guðrún Kristinsdóttir stjórnar samkór
uppsveitanna vestan Hvítárá M-hátíð í Aratungu
12.4. 1991
\ tengslum við hátíðina var komið fyrir mjög veglegri
myndlistarsýningu barna úr skólunum, og gafst
hátíðargestum því tækifæri til að skoða tvær sýningar
þann daginn, þá í skólanum og hina í Aratungu.
Til að hrista fólkið í uppsveitunum örlítið saman, og
til þess að kynnast menningu hvors annars, fluttu
“austanmenn” sína kvöldvöku á Borg þ. 26. apríl og við
“vestanmenn” okkar að Flúðum 3. maí.
Litli - Bergþór 6