Litli Bergþór - 01.12.1991, Qupperneq 8
Reiðleiðir frá Laugararási.
Eftir Pétur Skarphéðinsson
Fyrirþá sem stunda útreiðarsértilskemmtunarergaman að fara nýjarieiðir
öðruhvoru. Hérerætlunin aðsegja frá nokkrum leiðum sem hægterað fara
frá Laugarási. Verður fjórum eftirtöldum leiðum lýst.
1. Hringur um Vörðufell.
2. Um Höfða yfir HrosshagavíkíReykholt.
3. Yfir Skálholtsása í Hrosshaga.
4. í Skálholtstungu.
1. Hringur um Vörðufell.
Vörðufell er móbergsfjall 391 metra yfir sjó
og rís því 330 metra yfir landið í kring. Það er
efstáSkeiðum en þóað hluta í Biskupstungum
því þær ná til Iðu og Helgastaða sem eiga
hluta í fjallinu. Fjallið er þríhyrningslagað og
auðvelt að komast kringum það. Hæfilegt er
að ætla sér 5-6 tíma til að ríða þennan hring
frá Laugarási.
Hér verður lýst leiðinni rangsælis og byrjað
við Iðu en þar er beygt útaf á móts við
heimreiðina til vesturs og farið ofan við
sumarbústað sem þar stendur. Síðan er
haldið eftir ágætum götum fram með fjallinu
allt þartil komið er að mörkum Fjalls og Iðu, en
þarerhliðágirðingunni.Hliðstaurarþarstanda
í steypu og hefur töluvert verið viðhaft að
koma henni hingað því enginn bílvegur er hér.
Hér fram undan er hægt að fara niður á
árbakka Hvítár og ríða Höfðaflatir, sem eru
nátturuvætti vegna fuglalífs. Einnig má fara
hærra í fjallið en þar er heldur verri vegur.
Hvorleiðinsemvaliner endará hlaðinu í Fjalli
sem er gamalt höfuðból og hefur verið í eigu
sömu ættar frá því að það var keypt á uppboði
stólseigna um 1800. Sagt er að Skálholtsstóll
hafi átt allar jarðir á Skeiðum og allar nema
þrjár í Biskupstungum.
Frá Fjalli er ekki um annan veg að ræða en
þjóðveginn og er svo allt til Álfstaða, en á
leiðinni þangað er fyrst farið framhjá bæ sem
stendur hátt í fjallinu nokkru ofan vegar. Er
það Framnes. Ekki erþarbúskapurlenguren
land nýtt frá Syðri-Brúnavöllum. Á þessari
leið er gaman að virða Ólafsvallahverfið fyrir
sér en það horfir nokkuð öðruvísi við héðan
en frá venjulegu sjónarhorni af
Skeiðaveginum. Næsti bær sem leið okkar
liggur hjá er Vorsabær, en þar býr Jón
Eiríksson sem lengi varoddviti Skeiðamanna
og vel þekktur í Laugarási. Nú er sonur hans
Björn að mestu tekinn við búi og frá honum er
hinn frægi stóðhestur Gassi kominn.
Við erum nú sem næst hálfnuð með hringinn
og frá Vorsabæ liggur leiðin næst að
Birnustöðum en þar fyrir ofan bæ er mikið gil
íVörðufelliðsem heitirÚlfsgil. Erþarafrennsli
úrÚlfsvatnisemeruppáfjallinu. ÚrVörðufelli
taka Skeiðamenn kalt vatn og leiða um alla
sveit. Nú liggurvegurinn næst að Álfsstöðum
en frá þessum bæ er Ólafur Ketilsson bílstjóri
ættaður og einnig Helgi í Hrosshaga. Er hér
um tvær leiðir að velja. Halda má áfram
veginn sem leið liggur á Skálholtsveg austan
Ósabakka og síðan eftir honum yfir Fótarholt
í Laugarás, eða fara vestur með fjallinu ofan
túns á Álfstöðum. Sérkennilegt nafn er á
vatni vestan Álfstaða en það heitir Þömb.
Nokkuð blautt er með fjallinu og dálítil leit að
hliðum við Helgastaði en þó vel fært. Mun
þessi leið hafa verið sú mest farna hér áður.
Gilin á austur hlíð Vörðufells heita
Tæpastígsgil, Markagil, Bæjargil við
Helgastaði, Nóngil, Hellisgil og Valagil talið
frá norðri til suðurs. Á leiðinni upp Fótarholtið,
sem skelfir ökumenn á vetrum, er hægt að
virða stóð Jóns bónda á Helgastöðum fyrir
sér. Ekki er þó von til að sjá Kraka því hann
er nú kominn til útlanda en ef til vill einhvern
annan honum líkan. Ef heppni er með í för
getur verið að Margrét á Iðu komi ríðandi á
veginn þarna en hún er mestur útreiðamaður
í þessu nágrenni.
Litli - Bergþór 8