Litli Bergþór - 01.12.1991, Page 27
Hreppsnefndarfréttir.
Úr bókum hreppsnefndar frá ágúst - nóv 1991.
Að meðaltali eru tekin fyrir 10-12 mál á hreppsnefndarfundum,
þannig að einungis er hægt að drepa á það helsta hér í L.B. Það
helsta að mati undirritaðs vel að merkja.
Fundur 14. ágúst 1991.
Hundahald: Samþykkt drög að reglugerð um
hundahald í sveitinni. Tekur gildi frá áramótum
Deiliskipulaa: Samþykkt deiliskipulag af nánasta
umhverfi Aratungu, sundlaugarogskóla, þarsemgert
er m.a. ráð fyrir þjónustuhúsi á lóðinni milli Aratungu
og skólans. Samþykkt að bjóða Pósti og síma ásamt
Landsbanka íslands afnot af lóðinni.
Friðun afréttar: Landgræðslustjóri óskar eftir
viðræðum við sveitarstjórn um tímabundna friðun
afréttarins. Samþykkt að senda fjallskilanefnd afrit til
kynningar og stefna síðan að fundi með
Landgræðslumönnum síðla vetrar.
Kaupleiguíbúðir: TekiðfvrirbréffráS.H. verktökum.
þar sem boðist er til að byggja þær kaupleiguíbúðir
sem hreppurinn væntanlega fengi í haust á sömu
kjörum og þær íbúðir sem eru í byggingu. Tilboðið er
háð því að sömu teikningar séu notaðar. Núverandi
bygginganefnd kaupleiguíbúöa falið að athuga málið.
Fundur 10. september 1991.
Fjallskil: Bréf GuðjónsGunnarssonarfrá2. sept. þar
sem kvartað er undan álagningu fjallskilanefndar.
Hreppsnefnd mælir með að fjallskilanefnd verði við
óskum Guðjóns.
Kaupleiguíbúðir: Fundargerð byggingarnefndar
kaupleiguíbúðafrá6.sept. Nefndinleggurtilóbreyttar
teikningar að mestu og annaðhvort opið útboð eða
samning við S.H. verktaka. Samþykkt að semja við
S.H. verktaka með meirihluta atkvæða.
Fundur 26. september 1991.
Gatnagerðargjöld: Samþykkt tillaga að reglugerð
um álagningu gatnagerðagjalda í þéttbýli í
Biskupstungum. Um erað ræðagjöld vegna byggingar
nýrra svæða og álagningu á byggð svæði, svokölluð
B-gjöld vegna lagningar bundins slitlags.
Kaupsamninaar: Hreppsnefnd afsalaði sér
forkaupsrétti vegna garðykjubýlanna Akurs í Laugarási
og Árbakka á Syðri-Reykjum.
Leikskólinn: Fundargerð leikskólanefndar: Fram
kom að ráðnar hafa verið tvær konur til starfa og að
skólinn starfaði allan daginn. Gjaldskrá samþykkt til
áramóta.
Bókasafnsnefnd: Hreppsnefnd tilnefndi Arnór
Karlsson í nefndina og Hörð V. Sigurðsson til vara.
Lauaarás: Bréf Hagsmunafélags Laugaráss kynnt,
þar sem bent er á ýmis atriði, sem betur mættu fara
þar.
Landaræðsla: Landgræðsla ríkisins óskar eftir að
taka til friðunar og rannsókna nokkur rofabörð sunnan
Sandár og austan Kjalvegar. Heimild samþykkt gegn
því skilyrði að heimamenn verði hafðir með í ráðum er
að framkvæmdum kemur.
Fundur 8. október 1991.
Brekka: Stækkun sumarbústaðasvæðisins í
Brekkulandi samþykkt.
Spóastaðir: Lagður fram skipulagsuppdráttur af 70
ha svæði, sem sumarbústaðaland og til ræktunar.
Áætlaðir eru 23 bústaðir á 0,42 ha lóðum og afgangurinn
til ræktunar. Samþykkt af hálfu hreppsnefndar.
Haukadalur III: Lagðurfram skipulagsuppdrátturaf
37 ha svæði undir sumarbústaðabyggð. Samþykkt af
hálfu hreppsnefndar.
Gullfoss: Bréf Náttúruverndarráðs. Samþykkt
breyting á skipulagi við Gullfoss vegna tæknilegra og
fagurfræðilegra ástæðna, þegar að framkvæmdum
kom á svæðinu.
Laugarás: TekiðfyrirsvarbréftilHagsmunafélagsins
og samþykkt.
Kaldavatnsveita: Endurnýjuð umsókn um framlag
úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til lagningar
kaldavatnsveitu í sveitinni.
Fundur 12. nóvember 1991.
Kaldavatnsveita: Umsókn um vatn til notkunar í
gróðurhúsum frá Espiflöt h.f. vegna sérstakra
aðstæðna. Samþykkttil reynslu næstusexmánuðina
með fyrirvara ef vatn þryti.
Fjármál: Fram komaðtekjujöfnunarframlagersvotil
það sama og í fyrra u.þ.b. 7 milljónir. Einnig eru
útsvarstekjurfyrir 1990 lægri en áætlað var. Tekjuliður
fjárhagsáætlunar er því u.þ.b. 4 milljónum lægri en
áætlað var. Kemur þetta aðallega til með að hafa áhrif
á afborganir lána.
Launagreiðslur: Samþykkt að laun hreppsnefndar
og þeirra nefnda, sem launaðar eru, skuli vera óbreytt
frá fyrra ári.
Torfastaðir: Samþykkt að fella niður fasteignagjöld
á þeim hluta húsnæðis, sem notaður er undir kennslu
eins og gert er hjá öðrum skólum.
fbúðir aldraðra: Fram kom að bygginganefndin
hafði móttekið gjöf frá Sveini og Magnhildi í Bergholti
upp á eina milljón króna. Um leið var tilkynnt að
væntanlegt væri framlag frá Eiríki Sveinssyni um 6-
700 þúsund. Peningunum skyldi varið til að fullklára
þjónustuhúsnæði á neðri hæð Bergholts.
Tekið saman 16. nóvember 1991.
Sveinn A. Sæland.
Litli - Bergþór 27