Litli Bergþór - 01.12.1993, Síða 5
Hvað segirðu til?
Nú verða sagðar fréttir frá lokum síðasta vetrar
og fram í byrjun þess nýgengna í garð.
Veðurfar hefur verið með besta móti, fremur hlýtt
og hófleg úrkoma. Jarðargróður óx því vel í sumar,
ekki sérlega snemma en stóð langt fram á haust
vegna mikilla hlýinda í september. Tíð til heyöflunar
var mjög góð og mun vera mikið til af úrvals heyi, en
stór hluti þess er geymdur í plasthjúpuðum rúllum.
Fyrstu vikur vetrar voru úrkomusamar en hlýjar.
Ferðamannaþjónustan hefur blómstrað á þessu
sumri. Mikið hefur verið að gera á helstu
þjónustustöðunum, svo sem í Úthlíð, við Geysi og í
Reykholti. Siglingar á Hvítá hafa verið vinsælar, en
farið er á bátum eftir Hvítá frá Brúarhlöðum og
suður fyrir Drumboddsstaði. Nýjung var að boðið
í Tungnaréttum 1993.
Renata í Brekkugerði að draga.
var upp á siglingar á Hvítárvatni frá gamla
ferjustaðnum á Hvítá og inn í Karlsdrátt.
Fjallferðir fóru fram á hefðbundinn hátt og allar í
góðu veðri. í fyrsta safn fóru 24 leitarmenn auk ekils
og matreiðslumanna fyrir miðjan september og voru
Tungnaréttir þann 15. Var það mikill hátíðisdagur
hjá mörgum Tungnamönnum og gestum þeirra.
Áætla má að réttað hafi verið um 1800 fullorðnum
kindum og líklega eitthvað fleiri lömbum. Eftirsafn
var tveggja daga leit um síðustu helgi september. í
það fóru 6 leitarmenn auk nokkurra sjálfboðaliða.
Hestar voru fluttir á kerrum bæði innúr og á milli
staða. Leitað var allt innan frá Fögruhlíð og Graðhól
og suður að afréttargirðingu. Komið var með einar
45 kindur til byggða. í þriðju leit fóru 5 leitarmenn og
voru sjálfboðaliðar einnig með þeim. Ferð þeirra tók
viku og var farin um miðjan október. Fundu þeir 16
kindur. Nokkrar kindur voru sóttar í afrétt milli leita
og dilkær fannst við Sandá í byrjun nóvember. Fé
kom vænt bæði af fjalli og úr heimahögum.
Endurbætur hafa verið gerðar á nokkrum
vegum. Klæðningin á veginum frá Múla að efstu
Tungufljótsbrú var breikkuð og borið ofaní
Reykjaveg og hann byggður upp á köflum. Tvö
íbúðarhús hafa verið reist í Úthlíð, eitt í landi
Brekku, tvö hús með tveimur kaupleiguíbúðum
hvort eru í byggingu í Reykholti og verið er að reisa
rektorsbústað í Skálholti.
Fundur um sameiningu sveitarfélaga var í
Aratungu í október. Ólafur Örn Haraldsson skýrði
tillögu Umdæmanefndar og hann og tveir
nefndarmenn svöruðu fyrirspurnum.
Ýmsir mektarmenn hafa haldið upp á stórafmæli
hér í sveit upp á síðkastið með glæsibrag.
Herlegust mun talin veisla sem Eiríkur ívar
Sveinsson frá Miklaholti hélt í Aratungu snemma í
október í tilefni af áttræðisafmæli sínu.
Til nýtingar á náttúrugæðum má kalla að nú er
aftur farið að baka brauð, "þrumara", við
Reykholtshver. Áður fyrr var það gert í holu í jörð,
en nú er notaðurtil þess gamall mjólkurtankur.
Hátíðamessa var á Torfastöðum síðasta dag
október. Biskup (slands, Ólafur Skúlason, predikaði.
Afabróðir hans, séra Magnús Helgason, vígði
kirkjuna á nýársdag 1893, en hann var þá
sóknarprestur í Torfastaðaprestakalli. Eftir messu
var samsæti í Aratungu. Þar flutti Hreinn
Erlendsson, sagnfræðingur frá Dalsmynni, erindi
um sögu Torfastaða og presta þar og Barnakór
Biskupstungna söng.
Messur og kvöldsamkomur voru í öllum hinum
kirkjunum í sveitinni í fyrstu viku nóvember.
Hátíðamessa var svo í Skálholti 7. nóv. en tónleikar
og fyrirlestur að henni lokinni.
Þór Sævarsson frá Heiðmörk dó í
Kaupmannahöfn í október og var hann jarðaður á
Selfossi. Jón Þorbergur Einarsson í Neðradal
andaðist í byrjun nóvember. Hann var einnig
jarðsettur á Selfossi.
Litli - Bergþór 5