Litli Bergþór - 01.12.1993, Qupperneq 6
Hreppsnefndarfréttir
Hér á eftir fer úrdráttur úr fundargerðum og bókunum hreppsnefndar. Þótt hreppsnefndarfréttir
hafi vantað í síðasta blað þá er ekki pláss til að fara lengra aftur í fundargerðir hreppsnefndar. Af
augljósum ástæðum er stiklað á stóru og dregið fram það sem ég held að sveitungum þyki
forvitnilegt, nema því hafi verið gerð skil annars staðar.
Fundur 11. maí. D K
1. Frá ferðamálanefnd.
Eftir viðræður við Vegagerðina var lögð fram
tillaga frá ferðamálanefnd um merkingar í sveitinni.
Bæjarmerki kr. 11.000,- Hlutur sveitarfélagsins kr.
4.000,- hlutur býlis kr. 7.000,-. Sveitarfélagið
greiðir þriðjung af kostnaði við þjónustumerki og
settar verði upp götumerkingar. Kostnaður
sveitarfélagsins áætlaður kr. 500.000,-.
3. Samstarfssamningur um landgræðsluskóg í
Rótarmannagili.
Kynntur var samtarfssamningur um landgræðslu-
skóg í Rótarmannatorfum. Samningurinn er milli
Biskupstungnahrepps, Skógræktarfélags íslands og
Skógræktarfélags Árnesinga með samþykki
Landgræðslu ríkisins. Hreppsnefnd samþykkir að
samningurinn verði undirritaður fyrir hönd
landeiganda.
5. Skipulag Skálholts.
Rætt var skipulag Skálholts og Laugaráss og
eftirfarandi samþykkt:
í Ijósi framkominna gagna sem fylgja afgreiðslu
málsins til Skipulagsstjóra ríkisins treystir hrepps-
nefnd sér ekki til að mæla með breytingu á gildandi
aðalskipulagi. í Ijósi þess að núverandi íbúar
Skálholtsstaðar og kirkjuráð hafa lýst sig andvíga
niðurstöðu hreppsnefndar leggur hreppsnefnd til að
endanleg ákvörðun um veglínu við Skálholt verði
tekin af Skipulagsstjóra ríkisins og ráðherra.
6. Umsókn um gistiheimili að Galtalæk.
Lagt var fram bréf dags. 3. maí frá Sýslu-
manninum á Selfossi þar sem beðið var um
umsögn vegna leyfis fyrir gistiheimili á Galtalæk.
Samþykkt.
10. Samþykkt aö veita bókasafni skólans
bókagjöf í tilefni af góðum árangri 10. bekkjar
Reykholtsskóla við umhverfisverkefni í vetur.
14. Skipulag tjaldsvæðis. Lögð fram drög að
skipulagi tjaldsvæðis í Reykholti. Samþykkt að
vinna eftir þessum drögum.
15. Unglingavinna.
Hólmfríður Ingólfsdóttir hefur tekið að sér forstöðu
fyrir unglingavinnunni.
Fundur 8. júní.
3. Bréf frá Náttúruverndarráði vegna Gullfoss
dags. 28. maí. Því hafnað að heimila Nirði
Jónssyni að hefja greiðasölu í snyrtihúsi við
Gullfoss.
4. Límtré. Þorfinnur sagði frá aðalfundi Límtrés
sem haldinn var 7. júní. Þar kom fram að
rekstrarstaðan er erfið og tapið 12 milljónir á
síðasta ári. Verkefnastaðan er góð eins og er.
Litli - Bergþór 6 ------------------------
5. Erindi Skógræktar ríkisins. Þar er skýrt frá
því að búið sé að taka 248 ha úr landi Skálholts til
skógræktar. Samkvæmt lögum þarf samþykkti
sveitarstjórnar áður en skógræktarstjóri staðfestir
skógræktaráætlunina. Hreppsnefnd samþykkti.
7. Erindi Smára Guðmundssonar.
Lagður fram lóðaleigusamningur á 5 ha svæði í
landi eyðijarðarinnar Hóla þar sem Smári fer fram á
að fá að hefja landgræðslu og skógrækt. Sveini og
Kjartani falið að fara með Smára í vettvangskönnun,
áður en frekari ákvörðun verður tekin.
8. Bréf kirkjuráðs. Þar er óskað eftir að hrepps-
nefnd tilnefni einn mann í skólaráð Skálholtsskóla.
Samþykkt að Þorfinnur Þórarinsson verði sá fulltrúi.
13. Umsókn um starf viö leikskólann.
Svanhildur Eiríksdóttir sækir um stöðu fóstru við
leikskólann. Samþykkt að ráða Svanhildi.
14. Lesin fundargerö afréttarmálafundar dags. 7.
júní '93 sem haldinn var með landgræðslustjóra
Sveini Runólfssyni í Aratungu. Þar kom fram að
landgræðslan leggur ekki til áburð á beitiland eins
og undanfarin ár en vill í staðinn leggja til fræ og
áburð til að græða upp í kringum Árbúðir.
Landgræðslan tekur að sér að dreifa áburði fyrir
bændur, allt að 20 tonnum.
17. Umsókn um lóð. Þorsteinn Þórarinsson sækir
um hornlóð við Dalbrúnarveg er liggur að Daltúni.
Samþykkt.
20. Óskað eftir að háspennulínur í Reykholti og
Laugarási verði lagðar í jörðu og einnig þær
rafmagnslínur sem eru enn á staurum í hverfunum.
Fundur 9. júlí.
1. Hitaveita Reykholts. Skýrt frá viðræðum við
Geirharð Þorsteinsson og Bjarna Kristinsson um
kaup á landi og gufuréttindum í Reykholtshver.
Lögð fram bókun frá fundi stjórnar Hitaveitu
Reykholts 1. júlí þar sem tekið var fyrir tilboð
Geirharðs og Bjarna dags. 29.5. Stjórn veitunnar
hafnaði tilboðinu að hluta. Lagt fram bréf frá
Geirharði og Bjarna dags. 7.7. 93 og meðfylgjandi
tilboð þar sem þeir bjóða Biskupstungnahreppi alla
gufu í Reykholtshver í skiptum fyrir 20 mínútulítra af
100° C heitu vatni. Einnig býður Geirharður
Biskupstungnahreppi land við Reykholtshver
samtals um 3.600m2. Fyrir þetta kæmu heimtaugar
fyrir þrjú hús. Hreppsnefnd samþykkir að kaupa
landið og að veitan kaupi gufuna.
2. Guðjón Guðjónsson óskar eftir leyfi
hreppsnefndar til að taka upp nafnið Tjarnarkot á
nýbyggt hús á lóð úr landi Tjarnar. Samþykkt.