Litli Bergþór - 01.12.1993, Síða 7
Hreppsnefndarfréttir
3. Erindi Landbúnaöarráöuneytisins vegna
Laugar. Bréf dags. 28.6. og meðfylgjandi
leigusamningur um hluta af Jörðinni Laug í
Biskupstungum við Má Sigurðsson og Sigríði
Vilhjálmsdóttur Geysi. Leigutími 1.6/93 - 31.5/94
og framlengist um eitt ár í einu. Samþykkt af
hreppsnefnd.
5. Umsókn um veitingahús aö Birkilundi.
Lagt fram bréf frá sýslumanninum á Selfossi þar
sem óskað er eftir umsögn hreppsnefndar v/
umsóknar Ingvars Ingvarssonar þar sem hann
sækir um leyfi til að reka veitingahús með
vínveitingum. Hreppsnefnd hafnar erindinu vegna
ófullnægjandi aðstöðu en vísar á áður sendar
teikningar af orlofshúsum í Birkilundi. Oddvita falið
að svara með bréfi.
6. Fundargerð Þróunarverkefnis uppsveitanna.
Kynnt var fundargerð Þróunarverkefnis
uppsveitanna frá 1. júlí '93. Þorfinnur Þórarinsson
var tilnefndur af hreppsnefnd í undirbúningsnefnd
að stofnun sambyggðar eldri borgara.
8. Úr fundargerö skólanefndar.
Ákveðið að ráða Signýju Berglindi Guðmunds-
dóttur Skálholti í 2/3 úr kennarastöðu og Hjört Frey
Vigfússon Úthlíð í heila kennarastöðu.
Fundur 12. ágúst með umdæmanefnd.
1. Umdæmanefnd. Óformleg umræða um kosti og
galla sameiningar sveitarfélaga.
3. Aöalskipulag Geysissvæöisins.
Breytingar sem gera átti á fyrri skipulagstillögu
komnar frá arkitektinum. Samþykkt að fá samþykki
skipulagsstjórnar ríkisins til að auglýsa aðalskipulag
og deiliskipulag við Geysi.
5. Leikskólamál.
Búið að ráða í allar stöður. Athugað verður með
gæslu fyrir 6 ára börn.
6. Vatnsveitan. Oddviti skýrði stöðu mála. Einnig
skýrði hann frá breytingum sem komu upp í
sambandi við vatnstökuna í Austurhlíð, en gerður
var nýr samningur við landeigendur sem eru
Austurhlíð, Dalsmynni og Hlíðartún, og breyttist
þannig að Dalsmynni og Hlíðartún fá 5 sek. lítra
hvort en Austurhlíð afganginn.
Fundur 21. september.
1. Fyrri umræöa um sameiningu sveitarfélaga á
Suöurlandi. Þar er lagt til að átta hreppar í
uppsveitum Árnessýslu sameinist. Samþykkt var að
stefna að sveitarfundi um þessi mál í október.
Oddvita falið að fá menn á fundinn til að skýra málið
eða til að halda fyrirlestur.
4. Lagt fram skipulag sumarhúsa á Kjóastööum.
Samþykkt og sent umsagnaraðilum.
5. Teikningar af Kistuholti lagöar fram.
Samþykkt að auglýsa útboð í undirbyggingu
götunnar og í hesthúsaveg í héraðsblöðunum og
framkvæma verkið í haust.
6. Nafn á sumarbústaðalandi í Laugarási.
Bréf frá Sigurði Ólafssyni dags. 1. sept. '93 þar
sem farið er fram á að land erfingja Ólafs
Einarssonar læknis heiti Stöðulmúli. Samþykkt.
9. Uppgjör hönnunar skóla.
Reikningur fyrir hönnun skólahúss í Reykholti,
lokauppgjör kr. 849.848,- frá Magga Jónssyni
arkitekt. Heildarupphæð er því alls orðin um kr. 3
milljónir.
10. Leikskólamál.
Drífa sagði tillögu leikskólanefndar um gjöld hin
sömu og á s.l. ári eða kr. 15.000,- fyrir
heilsdagsumsjá. Innifalið er fæði kr. 4.000,-
(hádegismatur). Samþykkt að starfskonur borgi
sama gjald fyrir börn sín í leikskólanum og aðrir.
11. Erindi félags aldraöra.
Lesið bréf dags. 20.9. '93 þar sem farið er fram á
að hreppurinn kaupi áhöld og efni til að hægt sé að
byrja á einhverju tómstundastarfi. Samþykkt að
veita kr. 50.000,- til þessarar starfsemi.
12. Erindi U.M.F.B. þar sem farið er fram á
fjárstyrk. Samþykkt að láta U.M.F.B. hafa kr.
200.000,- til starfseminnar, og Aratunga taki á sig
kostnað við körfuboltakörfu í húsið.
13. Vatnsveitan.
Guðmundur sagði frá vatnsveitumálinu, en öllum
framkvæmdum er nú lokið. Lokatölur eru ekki
komnar en vitað er að kostnaður er rúmar 10
miljónir. Rætt var um framhaldið og er næst að
finna út gjaldskrá fyrir vatnið bæði stofngjald og
gjaldskrá sem þarf helst að vera lokið fyrir næsta
hreppsnefndarfund. Koma með tillögur fyrir næsta
fund.
14 Önnur mál.
a) Sigurjón afréttarvörður hefur hætt störfum.
b) Guðmundur óskaði eftir að hreppurinn gerði
körfuboltaaðstöðu við skólann, c.a. 150 m2.
Guðmundi og skólanefnd falið að gera tillögu fyrir
næsta fund og kostnaðaráætlun og einnig að gera
tilögu um stækkun leikvallar við leikskóla.
Oddviti sagði frá að búið væri að ákveða að setja
upp símaklefa við Aratungu.
c) Oddviti sagði frá því að hann ætli að segja af
sér sem stjórnarmaður í Yl-einingu á aðalfundi sem
haldinn er í kvöld. Þorfinnur á Spóastöðum gefur
kost á sér í hans stað.
Fundur 12. október.
1. Erindi foreldraráös leikskólans.
a) Þar er óskað eftir því að útivistarsvæði við
leikskólann verði stækkað.
Samþykkt var að stuðla að því að þessi stækkun
gæti farið fram og þá í samráði við skólanefnd.
b) Lögð var fram kostnaðaráætlun um körufbolta-
völl við skólann. Niðurstaða kostnaðaráætlunar var
kr. 600.000,-.
Samþykkt var að vísa þessari kostnaðaráætlun til
fjárhagsáætlunar, en í framhaldi af þessu var
Litli - Bergþór 7