Litli Bergþór - 01.12.1993, Qupperneq 9
S kálholtskantata
Skálholtshátíðarkórinn 1993.
aö gera flutning á þessari tilkomumiklu kantötu aö
veruleika.
Laugardaginn 24. júlí s.l. flutti Skálholtshátíöar-
kórinn svo kantötuna undir stjórn Hilmars Arnar,
ásamt blásurum og orgelleikara, viö góöar
undirtektir. Einsöngvarar meö kórnum voru Erna
Barnakór Biskupstungna gerði garðinn
frœgan á Skálholtshátíð.
Guðmundsdóttir sópran, Stefanía Valgeirsdóttir alt,
Wolfgang Knuth tenor og Eiríkur Hreinn Helgason
bassi. Lesari var Karl Guðmundsson leikari,
orgelleikari Árni Arinbjarnarson. Þess má geta aö
konurnar í kórnum voru allar í íslenskum
þjóöbúningi og tóku sig vel út!
Á Skálholtshátíðinni daginn eftir söng kórinn í
messunni ásamt Barnakór Biskupstungna, sem ekki
lét sitt eftir liggja, og á hátíðarsamkomu eftir
messuna voru svo endurteknir þrír þættir úr
kantötunni.
Þaö sem situr í manni eftir svona flutning er
ánægjan af því aö vinna meö svo mörgu góöu og
skemmtilegu fólki og vil ég nota tækifærið og þakka
öllum þeim, sem lögöu flutningnum lið, fyrir
samstarfiö og samveruna. G.S.
í sumar, nánar til tekið á Þorláksmessu á sumri,
25. júlí 1993 voru 30 ár liðin frá vígslu Skálholts-
kirkju og frá því aö Dr. Róbert A. Ottósson æföi upp
Skálholtskór þann er geröi garðinn frægan viö
vígsluathöfnina og lengi síöan. í ár voru líka liöin
100 ár frá fæöingu Páls ísólfssonar tónskálds. í
tilefni þessarra merku tímamóta þótti viö hæfi aö
Skálholtskór hinn nýi hæfi merkiö hátt á loft og flytti
SÁLHOLTSKANTÖTU Páls ísólfssonar, á
Skálholtshátíð í sumar. Páll samdi kantötuna áriö
1956 viö Skálholtsljóð Sr. Sigurðar Einarssonar í
Holti, í tilefni 900 ára afmælis biskupsstóls í
Skálholti. Var hún flutt þá undir beru lofti í Skálholti
undir stjórn Páls ísólfssonar og voru einsöngvarar
Þuríöur Pálsdóttir og Guðmundur Jónsson.
Eitthvaö haföi gamla fórnfýsin og sönggleöin
dalaö, ellegar áróöurinn veriö slappur, því þegar á
reyndi voru aöeins fjórir Tungnamenn til í slaginn,
þrír úr kórstjórn og eiginkona kórstjórans! Nú voru
góö ráö dýr, því þótt viö þættumst góö, og svo
heppilega vildi til aö einn var í hverri rödd, treystum
viö okkur ekki til aö skila hlutverki 80 manna kórs.
Því var farið í leitir til nágranna okkar í sveitunum í
kring, sem aö vanda brugðust vel viö. Árangurinn
var 30 manna kór, sem skírður var upp á nýtt,
SKÁLHOLTSHÁTÍÐARKÓRINN, og var aö
stærstum hluta mannaöur söngfólki úr uppsveitum
Árnes-sýslu. En einnig komu nokkrir lengra aö, svo
sem úr Ölfusi og Reykjavík.
Æfingar hófust í febrúar undir stjórn Hilmars Arnar
Agnarssonar og var æft einn laugardag í hverjum
mánuöi fram á vor. Til skiptis í nágrannasveitunum
til aö byrja meö, en á lokasprettinum voru æfingar í
Skálholti. Þaö lögöu því margir saman krafta sína til
Allt efni í
aðventukransa
og jólaskreytingar
Opið alla laugardaga og
sunnudaga frá kl. 10-19.
Eyravegi 2 - Sími 23211
Litli - Bergþór 9