Litli Bergþór - 01.12.1993, Page 13
Kort af hverasvœðinu eftir Pétur Jónsson, skipulagsarkitekt.
Guðmundur Indriðason staðsetti örnefnin.
allt hverfið og hveravatni dælt inn á hitunarkerfið í
öllum byggingum. Heitavatnsnotkunin nú er um 18 I
á sek. Hitaveitan sér 17 íbúðarhúsum og
barnaheimili RKÍ, alls um 7000 m3 fyrir hita, og auk
þess sláturhúsi, nýbyggðu og 5000m2 gróðurhúsum
í eigu 6 garðyrkjubænda. 1966 var lögð
heitavatnsleiðsla að Iðu. Þar er hitað upp íbúðarhús
og fimm sumarbústaðir."
í áðurnefndri grein Bjarna Harðarsonar segir svo
um hverasvæðið:
„Lækurinn, sem rennur í ána við Launrétt, kemur
úr lóni, sem hverirnir ofan við það mynda. Runólfur
Guðmundsson taldi þennan læk hafa heitið
Hveralæk en aðrir heimidarmenn höfðu það nafn
yfir annan læk á sjálfu hverasvæðinu og í tíð
Sigurmundar læknis var þessi lækur kallaður Ósinn.
Lónið sem nú heitir svo, var fyrr jafnan nefnt Vöðlar
eða Vaðlar. Skýringu á nafnbreytingunni sagði
Ingólfur á Iðu mér vera þá, að þegar Ólafur
Einarsson var hér læknir og bóndi, hafi hann stíflað
lækinn við Launrétt. Var það gert til þess að girða
túnið betur af með því að vatnið í Vöðlunum
hækkaði tii mikilla muna. Og þó stíflan brysti strax
næsta ár, hélst nafnbreytingin, og hefur þetta síðan
heitið Lónið. Ólafur sjálfur taldi þetta vel mega vera
rétt.- í miklum vatnavöxtum á áin það til að flæða
yfir í Lónið, enda mjúk, gróin eyri sunnan þeirra að
ánni.
Ofan við Lónið, norðan við þá, er aðal-
hverasvæðið, þó hverir séu reyndar líka austan við
og útí þeim. Á hverasvæðinu eru þrír aðalhverir
nafngreindir. Sá syðsti þeirra stendur nærri
Litli - Bergþór 13