Litli Bergþór - 01.12.1993, Síða 19
Hestamannafélagið Logi
Logareið á Laugarvatnsvelli.
Það var s.l. sumar að boð kom frá nágrönnum í
vestri um að félagar í Hestamannafélaginu Loga
væru velkomnir á hestaþing Trausta á Laugarvatns-
völlum, sem haldið skyldi laugardaginn 14. ágúst.
Buðu Traustamenn margs konar fyrirgreiöslu, svo
sem að flýta gerð reiðvegar út Laugardal svo hann
mætti verða tilbúinn fyrir ferðina.
Því var það að hásumarsútreið Hestamanna-
félagsins Loga var farin á Laugarvatnsvelli. Flestir
lögðu af stað föstudaginn 13. ágúst. Riðu þá út í
Laugardal og fengu að geyma hesta sína hjá vinum
og vandamönnum á ýmsum bæjum í Dalnum. Eins
mátti geyma hesta úti á Völlum.
Ekki er hægt að segja að vel viðraði til útreiða, því
hvassviðri var og moldrok svo vart sá út úr augum.
Þó munu 20 manns hafa farið þessa ferð.
Á laugardagsmorguninn sótti fólk hesta sína og
reið áfram út að Laugarvatni. Sumir fóru bílveginn
sem leið liggur en aðrir fengu samfylgd og leiðsögn
heimamanna út með fjöllum og komu norðaustan að
mótsstaðnum í þann mund sem formaður
Hestamannafélagsins Trausta, Sigurður Sigurðsson
í Hrísholti setti mótið og bauð menn velkomna.
Aðstaða til mótahalds á Laugarvatnsvöllum er hin
ákjósanlegasta, þægileg áhorfendasvæði meðfram
hlíðinni sem hallar niður að vellinum og þægileg
hestagirðing skammt frá. Samkoman fór í alla staði
vel fram, en sem áður sagði var hvassviðri mikið og
áttu mótsgestir oft erfitt með að heyra til þularins af
þeim sökum. Eftirminnilegast var að sjá 40-50
þátttakendur í einum hring í firmakeppni. Þar voru
margir glæsilegir gæðingar og vel setnir, enda áttu
dómarar greinilega erfitt með að gera upp á milli
þeirra. Milli atriða á kappreiðunum var skorað á
Logamenn í boðreið. Þrír piltar og tvær stúlkur gáfu
sig fram og kepptu því fimm frá hvoru félagi.
Skyldu þátttakendur hleypa spölkorn eftir
vellinum, spretta af hesti sínum, snæða því næst
kókosbollu og drekka úr kókdós með, bera svo
hnakkinn til baka og teyma reiðskjótann.
Traustamenn voru langt á undan. Allt fór þetta fram
Keppnislið Loga á Laugarvatnsvöllum.
Frá vinstri: Birna Sveinbjörnsdóttir, Guðrún
Magnúsdóttir, Gústaf Loftsson, Atli Eggertsson og
Olafur Lýður Ragnarsson.
með mikilli kæti og klappi. Eftir á kom í Ijós að
bollurnar þóttu fjarska vondar, enda hentu sumir
Traustamenn þeim bara í grasið. En gestirnir voru
svo kurteisir að þeir átu hverja ögn af bollunum og
drukku hvern dropa af kókinu. Enda var þeim eftir á
dæmdur sigurinn.
Að móti loknu voru hestar teknir og haldið heim á
leið. Fjöldi fólks átti leið austur yfir Hálsa og var glatt
á hjalla. Ráðgert hafði verið að Traustamenn byðu
Logamönnum í grillveislu við Laugarvatnsréttir á
leiðinni heim. En það viðraði ekki vel til matreiðslu
utan dyra svo þau Sigurður formaður og Dóra kona
hans buðu öllu Tungnafólkinu heim til sín. Hestarnir
voru látnir í volduga rétt, sem er nálægt Hrísholti,
heimili þeirra hjóna. Og verður ekki með orðum lýst
hvað notalegt var að setjast þar í stofu og þiggja
frábærar veitingar, bæði í mat og drykk.
Eftir dágóða stund var haldið áfram austur Dalinn.
Þegar kom að Brúará var farið að rökkva. Komust
þó sumir heim til sín um kvöldið. Nokkrir tóku þó
það ráð að fá hestana geymda hjá kunningjum og
riðu svo heim á sunnudeginum.
Var þá lokið ferðalaginu, sem þrátt fyrir erfið
veðurskilyrði var hið ánægjulegasta.
Helga og Inga Gýgjarhóli.
Litli - Bergþór 19