Litli Bergþór - 01.12.1993, Qupperneq 24
Umhverfis jörðina..frh.
Þaö var því tekið á móti okkur meö kostum og
kynjum. Viö lögðumst viö akkeri nálægt eyjunni
austan á rifinu, í skjóli fyrir staövindinum. Og ekki
höföum viö nema rétt varpað akkerum þegar bátur
kom upp aö síðunni hlaöinn eyjabúum, sem
streymdu upp á bátinn. Og allir vildu þeir versla viö
okkur, skipta perlum og perlumóöurskel fyrir skyrtur,
boli, ilmvatn eöa annað verstrænt glingur. En þegar
kaupæðið var af þeim runniö og þau höföu
sannfærst um aö viö værum frekar fátæk af
skiptigóssi, vildu þessir nýju vinir okkar allt fyrir
okkur gera. Þaö brást t.d. ekki aö hann Seitu vinur
okkar kæmi viö á leiðinni heim úr veiðitúr meö
nokkra fiska handa okkur og kókoshnetur og
banana skorti okkur ekki heldur. Einn daginn fórum
við meö þeim í fiskitúr út í austurrennuna og annaö
kvöldiö var farið aö veiöa humra á rifinu. Humrarnir
veröa eftir í pollum þegar fjarar út af rifinu og sjást
þegar lýst er á þá meö lugt.
Perluköfun er þjóöaríþrótt í Penhryn og ein aöal
tekjulindin auk kókos þurrkunar (copra). - En í
perluköfunarleiðangur fengum viö þó ekki aö fara! -
Okkur skildist aö margir íbúanna væru sæmilega
efnaöir, en þeir hafa hinsvegar fá sem engin
tækifæri til aö eyða peningunum. Vöruval á
eyjunum er mjög takmarkaö og ekki handhægt aö
skreppa í búðaferð, þegar bíöa veröur í tvo mánuöi
eftir bátsferöinni heim, eöa leigja flugvél aö öörum
kosti.
Auövitaö voru vinsældir okkar ekki alveg
ástæöulausar. Jim er rafmagnsverkfræðingur og
haföi sérhæft sig í viðgerðum á allskonar
rafeindadóti. Hann haföi því allsstaöar nóg aö gera
þar sem slík tól eru notuð, s.s. í lúxussnekkjunum í
höfnum vítt og breitt um höfin. En í Penrhyn sat Jim
öllum stundum viö viögeröir á útvarpstækjum,
segulbandsspilurum, vasaljósum, ritvél,
utanborösmótorum, rafmagnsmótorum......
Aumingja Jim, báturinn leit út eins og
viögeröaverkstæöi. Ég naut hinsvegar bara góös
af!
Miklum tíma eyddi ég meö "Volleyball" vinkonu
minni, eöa Ruaiti Sisi eins og hún heitir réttu nafni.
Volleyball (blak) er bara viðurnefni sem hún fékk af
því aö hún fæddist daginn sem blakvöllurinn var
vígöur! (eftir því sem hún sagöi sjálf.) Hún labbaði
meö mig um þorpið í heimsókn til vinkvenna sinna,
sem gjarnan sátu og sungu og spiluðu á gítar í
einum strákofanum, þegar þær voru ekki aö vefa
hatta úr pálmatrefjum, eöa viö húsverk, sem ekki
virtust íþyngja þeim mjög mikiö. Á sunnudögum
varö ég aö fara meö henni í kirkju, því þá mátti ekki
gera neitt annað. Ég átti engin frambærileg spariföt,
svo eins og hjá fjölskyldunni okkar á Raiatea var ég
dressuð upp. í nælonkjól meö "gullbelti" og hvíta
plastskó og á höfuöiö fékk ég einn af hennar lista-
vel geröu höttum. En kirkjuferðirnar voru
skemmtilegar. Söngurinn var tilkomumikill þótt
frumstæöur væri. Raddsterkar feitar konur voru
forsöngvarar og skiptust á aö byrja. Blésu tónunum
út af öllum kröftum, vaggandi meö lokuö augu.
Margraddaöur söngurinn virtist koma af sjálfu sér,
áreynslulaust og án umhugsunar. Andrúmsloftiö
samt afslappaö. Konur skruppu út undir miöri
prédikun til aö flengja óþekka krakka, eöa hölluöu
sér út um kirkjugluggann til aö senda þá eftir
sælgæti. Fliss og pískur. Allt svo eðlilegt.
Volleyball vinkona mín við hattagerð.
Fremstur er hatturinn góði, sem ég fékk
lánaðan í kirkjuferðirnar.
Annars notaði ég tímann í Penrhyn m.a. til aö
læra aö sigla léttabátnum, litlum trefjaplastbát, sem
hægt var aö sigla, róa eöa keyra fyrir vélarafli. Þ.e.
þangað til ég skar næstum af mér einn fingurinn viö
aö flaka fisk. Eftir þaö varö ég aö leggja
bátssiglingar og gítarspil á hilluna í bili, en í staöinn
tók ég til viö aö læra morskerfið og siglinga-
stjörnurnar. Þaö fór margt kvöldið og stýrisvaktin í
stjörnuskoðun eftir þetta og aö þeirri þekkingu bý ég
enn! Ég geröi líka töluvert af því aö baka
pönnukökur og kökur fyrir Volleyball, því enginn ofn
var til í þorpinu. í staöinn fékk ég ormétið mél,
hrísgrjón o.fl. - og aö skilnaði stráhattinn góöa, sem
ég fékk lánaðan í kirkjuferðirnar.
Eftir þrjár vikur var kominn tími til aö halda áfram.
Viö vorum kvödd meö virktum og ekki kom annaö til
greina en aö viö ætum morgunverð bæöi hjá Seitu
karli og Volleyball vinkonu áöur en viö héldum í
hann. Og þaö voru engir smá morgunverðir.
Humarhalar, feitar pönnukökur, „ommilettur" og
steiktur fiskur. Viö gátum okkur vart hrært fyrir ofáti
Litli - Bergþór 24