Litli Bergþór - 01.03.2005, Blaðsíða 26
núverandi Bræðratunguvegar breytast úr svæði fyrir land-
búnað í svæði fyrir frístundabyggð.
Tillagan var auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi
tveggja frístundalóða.
Tillagan var í kynningu frá 24. desember 2004 til 21. janúar
2005. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 4.
febrúar 2005. Engar athugasemdir bárust. Sveitarstjórn
samþykkir aðalskipulagsbreytinguna í samræmi við 18.
grein Skipulags-og byggingalaga og vísar málinu til skipu-
lagsfulltrúa til afgreiðslu.
Gerð grein fyrir kynnisferð til Norðurlanda. Sveinn A.
Sæland oddviti og Asborg Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi
sögðu frá því helsta sem fulltrúar sveitarfélagsins kynntu
sér í ferðinni.
Markmið ferðarinnar var að skoða sveitarfélög þar sem
skipulag frístundabyggða og ferðaþjónusta vegur þungt í
atvinnulífinu.
Ferðin tók sex daga og var flogið til Noregs, ekið yfir til
Svíðþjóðar og síðar Danmerkur og farið um „uppsveitir“
viðkomandi landa. Verið er að vinna greinargerð um ferðina
og verður hún lögð fram á fundi byggðaráðs og úrdráttur úr
henni kynntur í Bláskógafréttum.
Erindi frá Sölva Arnarsyni. Umsókn um framkvæmda-
leyfi fyrir efnistöku í landi Lækjarhvamms. Einnig að sami
efnistökustaður í landi Lækjarhvamms verði færður inná
aðalskipulag sveitarfélagsins. Sveitarstjórn heimilar fyrir
sitt leyti að auglýsa aðalskipulagsbreytingu vegna námu í
landi Lækjarhvamms og að efnistaka geti hafist um leið og
aðalskipulagsbreyting hefur verið staðfest af
Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra í samræmi við
skipulagslög. Skipulagsfulltrúa verði í samvinnu við um-
sækjendur og formann byggðaráðs falið að semja reglur um
efnistökuna þannig að hún verði í sem mestri sátt við
umhverfið. (Snæbjöm vék af fundi við umræðu um þennan
dagskrárlið)
Frá vígslu Gíslaskála í Svartárbotnum
Margrét í Brekkuskógi, Camilla í Asakoti, Guðrún Björk
Ketilsdóttir og Guðrún Einarsdóttir frá Kjarnholtum.
Oddviti Bláskógabyggðar flytur rœðu áður en nafii
hússins er afhjúpað.
SELÁS-BYGGINGAR ehf.
Tilboðsgerð, viðhald, hurðir,
gluggar, timbur-, íbúðar-,
sumar og stálgrindarhús
Hákon Páll Gunnlaugsson
löggiltur húsasmíðameistari + byggingastj.
Sími 486-8862/894-4142
netfang: hakon@eyjar.is fax: 486-8620
Litli Bergþór 26