Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.07.1995, Blaðsíða 11
Ari Gíslason
kennari og ættfræðingur
Minning
Ari Gíslason andaðist á Sjúkrahúsi Akranes aðfaranótt 10. maí 1995.
Hann fæddist að Syðstu-Fossum í Andakílshreppi 1. des. 1907 og ólst þar upp.
Ari var kennari að mennt, tók kennarapróf 1928. Hann var við kennslustörf víða um land á árunum
1929-66, síðast á Akranesi.
Ari safnaði ömefnum á sumrin frá 1940-65. Hann var líka að söfnun um sögulegan fróðleik fyrir
Borgarljarðarhérað. Þá starfaði hann mikið í Góðtemplarareglunni og var m.a. æðstitemplar stúkunnar
Akurblómsins á Akranesi.
Þegar Ari var kennari í Reykjavík um 1930, hitti hann mann á fömum vegi í Reykjavík, hann bað
Ara að ganga með sér upp á Þjóðskjalasafn. Hann sagði Ara að athuga þann fróðleik sem þar væri að
finna, þetta var upphaf ferða Ara á Þjóðskjalasafnið og þær urðu nokkuð margar.
Ari Gíslason var afkastamikill ættfræðingur, eftir hann liggja um 30 ættfræðibækur, bæði unnar af
honum einum eða með öðrum.
Það var gott að kynnast Ara, hann var alltaf glaður í bragði, með glettni í augum, en þau gátu líka
orðið hörð ef því var að skipta.
Hann hafði þann sérstaka hæfileika að geta gert grín að sjálfum sér, því maðurinn var skemmtilegur
og þótti góður leiðsögumaður enda mjög fróður um sögu lands og þjóðar. Ari var einn af stofnendum
Ættfræðifélagsins og heiðursfélagi þess.
Við vottum konu hans, Helgu H. Helgadóttur, og dætrum þeirra innilega samúð við fráfall hans.
Minning Ara Gíslasonar mun lengi lifa í íslenskum fræðaheimi.
Hólmfríður Gísladóttir
Niðjamót Eyjólfs frá Dröngum
framhald af fyrri siðu
Að afstöðnu niðjamóti létu margir í ljósi óskir um að
skyldmennin hittust oftar til að endurnýja kynni. Var
álit manna að vel hefði tekist til um þetta fyrsta
niðjamót og ástæða væri til að halda áfram. Fjórir
aðilar höfðu með sér myndbandstökuvélar á mótið
og er nú verið að klippa saman afraksturinn í eitt
band. Mun það verða til sölu.
Akveðið hefur verið að gefa út fréttabréf síðar með
upplýsingum um framættir.
Að lokum er hér niðurlagið á ljóði Sigurborgar
Eyjólfsdóttur sem hún flutti á hlaðinu á Dröngum 2.
júlí 1994:
Eg vildi er sálin mín svífur á braut,
mn svolitla stund mœtti ’ eg dvelja,
heima á Dröngum í lítilli laut
og Ijósin á himninum telja.
( ö
Almennar athugasemdir um aðstöðu til
niðjamótshalds í Stykkishólmi:
Umhverfi fallegt, bærinn hlýlegur. Hótel
gott, matur prýðilegur, en framreiðsla of hæg
og hljóðkerfi gallað eins og áður er komið
fram. Önnur gistiþjónusta góð, sömuleiðis
tjaldstæði.
Hægt hefði verið að biðja um að taka frá
hluta af tjaldstæði handa hópnum svo hann
væri útaf fyrir sig, en reyndar kom það ekki að
sök því fáir aðrir voru á stæðinu.
_________________________________________J
khp tók saman og stytti nokkuð.
11