Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2007, Blaðsíða 8
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í janúar 2007
Matthías Ólafsson
(1855-1937)
bóndi á Orrahóli
á Fellsströnd.
Fæddur á Hlað-
hamri í Hrútafirði
Strandasýslu.
Fluttist vestur á
Fellsströnd um
þrítugt.
níu upp, þar af settust sex að í Dalasýslunni. Guðfinnur
afi minn bjó í Litla-Galtardal á Fellsströnd, Ólafur
bróðir hans og síðar Guðmundur bróðir hans voru
bændur á Melum á Skarðströnd, Flólmfríður varð
húsmóðir í Vogi á Fellsströnd, Ingibjörg húsmóðir í
Belgsdal í Saurbæ og Valgeir varð bóndi á Ytrafelli á
Fellsströnd. Öll giftust þau innfæddum Dalamönnum
og sé litið til næstu kynslóðar þá bjuggu Matthías og
Gestur Guðfinnssynir á Ormssöðum, Ingólfur sonur
Hólmfríðar bjó í Vogi, Jófríður dóttir Hólmfríðar var
húsmóðir á Hallsstöðum, Ólafía dóttir Ingibjargar
var húsmóðir í Belgsdal og Jóakim sonur Ingibjargar
var bóndi í Belgsdal. Guðmundur sonur Jófríðar
bjó síðan í Túngarði og í Skógum og Friðjón
sonur hans er nú bóndi á Hallsstöðum en hann er
barnabarnabamabarnabarn Ólafs og Ingibjargar!
Ingibjargar, sem einnig flutti vestur hafa ættliðirnir
runnið mun hægar fram. Hans Matthíasson bjó
á Orrahóli og þar býr nú sonur hans Börkur,
bamabarnabarn Ólafs. A Lyngbrekku í sömu sveit
býr Sigurður Björgvin Hansson og Lára systir þeirra
bræðra býr á A á Skarðsströnd. Bróðir Hans á
Orrahóli, Matthías, var svo bóndi á Hömrum í
Laxárdal. Sé litið til þeirra 130 ára sem liðin em frá
því að forfeður mínir fluttu sig yfir að Breiðafirðinum
hafa því tuttugu og einn afkomandi þeirra byggt að
minnsta kosti 15 jarðir um lengri eða skemmri tíma
og byggja nú þrjár af þeim sex jörðum sem enn eru
í byggð á Fellsströndinni. Það var því góð búbót og
góð ávöxtun sem Breiðafjörðurinn fékk með ungu
landnemunum fyrir margt löngu.
Matthías Ólafsson giftist Pálínu Dagsdóttur af Ormsætt,
sem hér sést lengst til hægri ásamt bróður sínum
Helga og systur sinni Herdísi. Öll voru þau systkinin
í Hjálpræðishernum en Matthías faðir þeirra stofnaði
söfnuð á Fellsströndinni sem náði mikilli útbreiðslu um
tíma. Helgi Dagssou varð svo seinni maður Agnesar
langömmu minnar og það var með Guðrúnu systur
þeirra Dagsbarna sem Björn langafi minn átti barn
framhjá.
Góð búbót
Sé litið til afkomenda Matthíasar, sonar Ólafs og
Hans Matthíasson (1901-1987) bóndi á Orrahóli á
Fellsströnd ásamt konu sinni Sigríði Halldórsdóttur og
börnum þeirra Láru, Matthíasi og Ingu.
Og þótt ótrúlegt megi virðast lifa ættarböndin enn
og enginn velkist í vafa um skyldleikann þótt liðið
sé á aðra öld frá því flestir sameiginlegir forfeður
okkar héldu á vit hins óþekkta! Enn tala þeir um
Björnsættina og gráu augun fyrir vestan. Og þótt
óðum fenni í sporin er Breiðafjörðurinn samur við
sig og breiðir út faðminn móti þeim sem þangað
leita. Enn úar æðarfuglinn og selurinn mókir á skeri.
Jökulinn ber við himin og sólin sígur í hafið, nú eins
og forðum, þegar forfeður mínir af Norðurlandinu
leituðu lífsbjargar við fjörðinn breiða. Hér bíður
sagan við hvert fótmál, hér tala þúfur og steinar,
strönd og haf. Hér er stór hluti minnar ættarsögu
skráður, saga og örlög kvenna og karla sem flúðu
hafís og óáran, heyleysi og harðindi og lögðu á
heiðina í vesturátt í leit að betra lífi.
Heimildir: Dalamenn, Strandamenn, Ljósmœöratal,
Tröllatunguœtt, Ormsœtt, kirkjubœkur af svœðinu,
manntöl af svœðinu, Enginn má undan líta eftir Guð-
laug Guðmundsson, dagbœkur afa míns Guðfinns
Jóns Björnssonar, handrit í minni vörslu með Ijóðum
langalangafa míns Olafs Björnssonar, örnefnaskrá Sól-
heima í Laxárdal, auk ótal munnlegra heimilda.
http://www.vortex.is/aett
8
aett@vortex.is