Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2007, Blaðsíða 20
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í janúar 2007
Atta ættliðir á Núpsstað
Á Núpsstað hefur Núpsstaðaættin haft búsetu í 8 ættliði eða allt frá árinu 1720 þegar Jón
Bjarnason hóf þar búskap. Eftirfarandi ættrakningu hefur verið komið fyrir á Núpsstað
ferðamönnum til fróðleiks og ánægju.
Núpsstaður í Vestur-Skaftafellssýslu er austasti bær
í Fljótshverfi og þaðan er talið að lengst og örðugast
hafi verið að komast í kaupstað fyrr á öldum, en
þá þurfti annað hvort að fara vestur á Eyrarbakka
eða austur á Djúpavog. Núpsstaðarmenn veittu
ferðamönnum fylgd yfir vötnin og Skeiðarársand
meðan farið var á hestum. A Núpsstað er gamalt
torfhlaðið bænhús, afar hlýlegt, sem mun að stofni
til vera frá 17. öld. Það er í umsjá þjóðminjavarðar.
Hannes Jónsson bóndi á Núpsstað, lengi landpóstur,
ferðagarpur og vatnamaður var mörgum ferðalöngum
vel kunnur enda ætíð vel tekið á móti gestum á
Núpsstað. Þar er einstök náttúrufegurð og varla er
nokkurs staðar á landinu eins heilleg mynd gamalla
tíma, en þar standa enn á annan tug gamalla húsa af
ýmsum gerðum og stærðum. Væri óskandi að þeim
verði um ókomna framtíð sómi sýndur. Þeir sem
leggja leið sína að Núpsstað eiga margir gott spjall
við Filippus Hannesson bónda, en hann er nú einn
eftir á bænum, síðastur sinna systkina, en Eyjólfur
bróðir hans lést árið 2004, 97 ára að aldri.
Mörg hinna tíu systkina frá Núpsstað hafa náð
hárri elli. Elsta systirin Margrét er fædd 15. júlí 1904
og verður því 103 ára í sumar. Sjálfur er Filippus
nýlega orðinn 97 ára og Eyjólfur bróðir hans náði
einnig 97 ára aldri. Jón bróðir þeirra er 93 ára, fæddur
1913 og Margrét „yngri“ systir þeirra lést síðastliðið
haust 96 ára. Dagbjört systir þeirra lést 92 ára 1998
og Málfríður lést 88 ára árið 2002. Það má því með
sanni segja að langlífi systkinahópsins á Núpsstað
sé mikið og ólíkt örlögum Margrétar ömmu þeirra,
heimasætunnar á Núpsstað sem lést aðeins 17 ára.
***
1. Jón Bjamason fæddur 1696 á Geirlandi, dáinn
í maí 1792 (96 ára). Hann var þrígiftur og var
Guðlaug Gissurardóttir fædd 1704 í Öræfum,
Hér situr Filippus Hannesson, 97 ára, bóndi á Núpsstað, óðali feðra sinna, milii gömlu grasigróinna húsanna sem prýða
bæinn. (Ljósmynd Guðfinna Ragnarsdóttir)
http://www.vortex.is/aett
20
aett@vortex.is