Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2007, Page 23
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í janúar 2007
Nautevri er eyðibýli og kirkjustaður á Langadalsströnd við innanvert ísafjarðardjúp. Sagnir eru um að sænaut hafi
verið svo ágeng áður fyrr á Nauteyri að flytja hafi orðið bæinn úr stað og þangað sem hann stendur nú, fjarri sjó.
(Ljósmynd Björn Jónsson)
Galtahryggur, Vatnsfjarðasókn
Látrar, Vatnsfjarðasókn.
Nauteyri, Kirkjubólssókn
Æðey, Snæfjallasókn
Marðareyri, Staðarsókn
Kvíar, Staðarsókn
Hrafnsfjarðareyri, Staðarsókn
Hesteyri, Aðalvíkursókn
STRANDASÝSLA
Svanshóll, Kaldrananessókn
Bjarnarnes, Kaldrananessókn
Kálfanes, Staðarsókn Steingrímsfirði
Hvalsá, Fellssókn
Hrafnadalur, Prestsbakkasókn
Ný ættfræðibók
Út er komin hjá útgáfunni PJAXI bókin
Lífshlaup hjónanna Benedikts Þ. Gröndal, skálds
og Sigurlaugar Gröndal. Höfundur er Guðfinna
Lilja Gröndal. I bókinni rekur hún ævi hjónanna
frá vöggu til grafar, greinir frá foreldrum þeirra.
systkinum og fleiru. Þá eru ljóð til konu hans
og barna, eftirmæli um þau. niðjatal með fjölda
mynda, ýmis ljóð og fjöldi óbirtra handrita s.s.
skáldsaga, leikrit, smásögur, ljóðsetning og fl.
Bókin kostar 4.980 kr. en félagsmenn Ætt-
fræðifélagsins fá 20% afslátt.
Guðfinna Lilja Gröndal flytur fyrirlestur um
þau hjónin Benedikt og Sigurlaugu á næsta
félagsfundi Ættfræðifélagsins fimmtudaginn 25.
janúar.
Bókina má nálgast eða panta hjá PJAXA
Suðurlandsbraut 6 í síma 5659320.
Gleðilegt ár!
Bókagjafir
Ættfræðifélaginu hefur borist vegleg bókagjöf
til minningar um Ingibjörgu Olgu Hjaltadóttur,
frá börnum hennar, en Ingibjörg lést langt fyrir
aldur fram 1996. Ingibjörg var mjög virk í Ætt-
fræðifélaginu og fékkst mikið við ættfræði.
Félagið þakkar höfðinglega gjöf og minnist Ingi-
bjargar með hlýhug.
Arngrímur Sigurðsson hefur fært Ættfræði-
félaginu bókagjöf og þakkar félagið honum
innilega fyrir gjöfina svo og alla aðstoð, áhuga
og vinnu á liðnum árum. Fyrir þá sem ekki er
það kunnugt þá var það Amgrímur sem hannaði
merki Ættfræðifélagsins.
http://www.vortex.is/aett
23
aett@vortex.is