Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2008, Qupperneq 17
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í janúar 2008
Leiðréttingar og viðbætur
við Rangvellingabók
Saman hafa tekið Valgeir Sigurðsson, Ingólfur Sigurðsson,
Þorgils Jónasson og Ragnar Böðvarsson
Árið 1982 kom út Rangvellingabók, saga
jarða og ábúenda íRangárvallahreppi, skrif-
uð af Valgeiri Sigurðssyni á Þingskálum.
Almannarómur var að bók þessi væri eitt
vandaðasta œttfrœðirit sem út hefði verið
gefið á landi hér, en eins og höfundur tók
fram í formála, var óhjákvæmilegt að í bók
slíkrar gerðar slœddust ýmsar villur og hóf
Valgeir að skrá leiðréttingar við einstök
atriði fljótlega eftir útkomu bókarinnar.
Valgeir varð bráðkvaddur í febrúar 1994, en
bróðir hans Ingólfur hélt merki hans á lofti. Hann
vann með Ragnari Böðvarssyni og Þorgils Jónassyni
að viðbótum og leiðréttingum við handrit þau
sem Valgeir lét eftir sig, en það efni birtist svo í
fyllingu tímans í Landeyingabók, Landmannabók,
Holtamannabók I og nú síðast Holtamannabók II. Er
bók um Djúpárhrepp nú eina bókin í þessari ritröð
sem á eftir að birtast almenningi.
Auk þessa hélt Ingólfur áfram að vinna úr ýmsum
vafaatriðum um ættfræði Rangvellingabókar og
nokkrum mánuðum fyrir andlát sitt í mars 2003 lét
hann Ragnari Böðvarssyni í hendur handrit með
ríflega 80 leiðréttingum. Olgeir Möller tölvuskráði
síðan handritið og bar all margar upplýsingar þess
saman við önnur gögn. Er honum hér með þakkað
ágætt framlag og einnig skal Halldóri Gestssyni
fræðimanni á Flúðum þakkað fyrir upplýsingar og
góð ráð. Ragnar og Þorgils Jónasson hafa síðan
bætt ýmsu við og er þess að vænta að þeir Iesendur
Rangvellingabókar sem pistil þenna hafa við hendina
leiðist nú síður á glapstigu í rakningu á ættum Rang-
vellinga.
Lagfæringar:
1) Bls. 4—5. Jón Bjarnason. Helga dóttir hans
húskona á Völlum í Ölfusi f. 1775 d. 16. jan. 1841
giftist Guðmundi Einarssyni bónda á Riftúni í Ölfusi,
Guðrún dóttir hans fyrr húsfreyja í Bakkakoti í
Leiru en síðar í Kötluhól í Leiru f. 23. júní 1783 d.
5. mars 1838 fyrr gift Sigurði Sigurðssyni, en síðar
Gunnari Bjömssyni, en ekki Gunnari Bjamasyni.
(Skiptabók Ámessýslu 31. des. 1841, Halldór Gests-
son fræðimaður á Flúðum). Barnsmóðir Jóns var
Ingunn Magnúsdóttir síðar húsfreyja í Hildarseli í
Hrunamannahreppi f. 3. maí 1763 d. 28. febr. 1858.
Foreldrar Magnús Gunnhvatsson bóndi í Bryðjuholti
í Hrunamannahreppi f. 1726 d. 23. maí 1803 og seinni
kona hans Guðrún Magnúsdóttir f. 1728 d. 25. nóv.
1802. Föðurforeldrar Gunnhvatur Þorkelsson bóndi í
Efra-Langholti f. 1693 d. 1759 og kona hans Guðný
Gissurardóttir f. 1686 á lífi 1764. Móðurforeldrar
Magnús Jónsson bóndi í Hrútafelli undir Eyjafjöllum
f. 1689 og kona hans Helga Kálfsdóttir f. 1696 d. um
1777. Dóttir þeirra Guðrún húsfreyja í Snússu f. 6.
júlí 1788 d. 14. apríl 1856 gift Jóni Jónssyni.
2) Bls. 6. Steindór Þórðarson. Sigríður Árnadóttir
kona Steindórs varekki móðir Árna ,funa’Þórðarsonar
í Rafnshúsum. Sigríður móðir hans var dóttir Árna
Tómassonar og Guðrúnar Sveinsdóttur og giftist
Erlendi Ólafssyni bónda í Ásmúla. (Sjá nánar í Land-
mannabók bls. 401).
3) Bls. 14—15. Magnús Bjarnason. Sonur þeirra
Hólmfríðar sem fæddur var 29. okt. 1801 og bjó
í Efri-Gegnishólum hét Bjarni en ekki Magnús.
Barnsmóðir Magnúsar var Guðrún Ólafsdóttir síðar
húsfreyja í Vatnskoti í Þykkvabæ f. 1768 d. 17. jan.
1835. Foreldrar Ólafur Magnússon bóndi í Efraseli í
Hrunamannahreppi f. 1714 d. 23. sept. 1788 og Þóra
Jónsdóttir seinna húsfreyja í Vatnskoti f. 1738 d. 12.
okt. 1799, að öllum líkindum systir Fjalla-Eyvindar.
Föðurmóðir Guðrún Þorvaldsdóttir húsfreyja í Skip-
holti í Hrunamannahreppi f. 1693. Dóttir þeirra:
Halldóra f. 3. maí 1797 d. 11. s.m.
4) Bls. 15 og 18. Guðmundur Benediktsson. Föður-
afi Guðrúnar konu Guðmundar, Magnús Ólafsson
bóndi á Kirkjulandi, var fæddur 1702, ekki 1727.
5) Bls. 16. Jón Ófeigsson. Móðir Jóns, Hallbera
Jónsdóttir húsfreyja í Stórumörk var dóttir Jóns Jóns-
sonar bónda í Dalskoti f. 1726 á lífi 1801 og konu
hans Sigríðar Gunnarsdóttur f. 1740 d. 28. júlí 1829.
Kona Jóns, Gróa Jónsdóttir, dó 12. nóvember 1879,
ekki i. nóvember 1879.
6) Bls. 18. Sigurður Þorsteinsson. Sonur hans,
Sigurður bóndi í Ytrihól f. 22. júlí 1819 dó 28. okt.
1880.
7) Bls. 19. Magnús Hermannsson. Tengdamóðir
hans, Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja í Fíflholtshjáleigu
f. um 1792 var dóttir Jóns Magnússonar bónda á
Norður-Götum í Mýrdal f. 1759 d. 23. ágúst 1811
http://www.ætt.is
17
aett@aett.is