Foreldrablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 10

Foreldrablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 10
— En hafa verk íslenzkra barna ver- i8 send utan til sýninga? „Já, það hefur komið alloft fyrir, til dæmis var send héðan stór sýning til Póllands fyrir tveimur árum, og þá fengu íslenzk hörn mörg góð verðlaun fyrir verk sín. Svo hafa einstakir ís- lenzkir skólar sent sýningar til útlanda af og til.“ -—- Er kennt föndur í barnaskólun- um? „Ég get ekki svarað þessu alveg ákveðið, vegna þess að mér er ekki kunnugt um, hvort föndurkennsla fer fram í öllum bamaskólum borgarinn- ar, og hve mikil, en í Laugamesskól anum hafa drengir tvær stundir á viku í föndri.“ — HvdÖa verkefni hafa þeir? „Þeir móta ýmsa smáhluti i jarðleir, gera grímur, hatta og jólaskraut úr pappír, smábáta, skálar og fleira úr pappa og smáhluti úr basti og ef til vill fleira, ef timinn leyfir.“ — Vœri ekki æskilegt að föndur- kennsla hæfist fyrr? „Jú, föndurkennsla ætti að hefjast strax í 7 ára bekkjum. Bekkjakennarar reyna að leyfa börnunum að föndra ofurlítið í 7 og 8 ára deildum, en ekki er þeirri starfsemi ætlaður sérstakur tími á stundaskrá barnsins.11 — Menn eru mismunandi hand- lagnir að eðlisfari, en kemur samt ekki. allgreinilega í Ijós, hvort börnin hafa fengið að föndra áður? „Jú, oftast, því að æfingin hefur mik- ið að segja, og það tekur nemandann íslenzk börn skoða japanskar barnateikningar. 8 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.