Foreldrablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 29
Barnaskólar Reykjavíkur
Viðta! við skólafulltrúa og skólasálfrœðing Reykjavíkurborgar.
ForeldrablaðiS leitaði frétta hjá Kagnari Georgssyni, skólafulltrúa
Reykjavíkurborgar, um barnaskólana í Reyjavík, og bað liann að
svara nokkrum spurningum um skólamúlin. Hann tók þeirri mála-
leitan vel, og fer viðtalið hér á eftir.
— Hefur nemendum fjölgáð mikiS
á siÖustu árum?
„Árleg fjölgun
fræðsluskyldra nem-
enda í Reykjavík
hefur verið fremur
hægfara nú allra
síðustu árin, eink-
um, ef miðað er við
hina feikilega öru
fjölgun, sem var í
skólunum fyrir ára-
tug síðan. Um 1950 var fjölgunin svo
ör, að 7 ára börnin, sem þá urðu skóla-
skyld í Reykjavík, voru nálægt helm-
ingi fleiri en hin, sem luku skólaskyld-
unni á sama ári.
Á eftirfarandi yfirlili sést nemenda-
fjöldi (7—12 ára) í barnaskólum
Reykjavíkur siðustu 12 árin:
Haustið 1951 voru börnin 5187
— 1952 — — 5694
— 1953 — — 6127
— 1954 — — 6581
— 1955 — — 6790
— 1956 — — 7278
— 1957 — — 7566
— 1958 — — 7867
— 1959 — — 8087
— 1960 — — 8183
— 1961 — — 8378
— 1962 — — 8474
Er því árleg meðalfjölgun á þessu
tímabili nálægt 300 börn. Fyrstu þrjú
árin, sem taflan sýnir, er meðalfjölg-
unin um 460 börn á ári, en síðustu
þrjú árin hefur fjölgunin numið tæp-
lega 130 börnum á ári að meðaltali.
Það er að vísu veruleg fjölgun, en
breytingin er samt mikil.
1 gagnfræðaskólunum er fjölgunin
nú síðustu árin hlutfallslega meiri en
í barnaskólunum. Ber þar tvennt til.
1 fyrsta lagi gengur fjölgunarbylgjan
þar seinna fram, og í öðru lagi virðast
nemendur halda áfram gagnfræða-
námi, að lokinni skólaskyldu, i síhækk-
andi hlutfalli. í 3. bekk gagnfræðaskól-
anna eru t. d. nú i vetur 1165 af þeim
1280 nemendum, sem luku skólaskyld-
unni með unglingaprófi s. 1. vor, eða
um. 91%.“
- Þá þarf að byggja mikiÖ til aÖ
mæta þessari fjölgun?
„Já, mikið hefur þurft að byggja og
mikið hefur verið byggl. Fyrir aðeins
rúmum áratug var Laugamesskólinn
eini skólinn austan hverfamarka Aust-
urbæjarskólans, og náði því unida'mi
hans þaðan og allt að endaroörkum
borgarlandsins i austri. Þá voru 1630
skólaskyldir nemendur í Laugarnes-
skólanum. Á þessu svæði hafa síðan
risið 7 nýir skólar, og eru alls 5500
FORELDRABLAÐIÐ 27