Foreldrablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 32

Foreldrablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 32
barn er fætt á árinu og hvort það er drengur eða stúlka. Ut í þessi atriði er ekki unnt að fara hér, aðeins skal nefnt, að reynslan hef- ur sj^nt, að ótimabær og of þung verk- efni eru ekki aðeins gagnslaus, heldur geta beinlínis tafið fyrir eðlilegri fram- för. Notkun skólaþroskaprófa er hér enn á tilraunastigi og verður enn fyrst um sinn. í rauninni koma þau aðeins að gagni sem einn liður í auknum skiln- ingi foreldra og kennara á þroska og kennslu byrjenda, samtímis því sem skólarnir skapa aðstöðu til kennslu, er sé við hæfi. Mig langar aðeins til að skjóta því fram, að mér finnst óskynsamlegt að heimta sönnun fyrir námshæfni barns við 6—7 ára aldur. Það sem skiptir máli er árangur barrisins á aldrinum 10—15. ára.“ - Hvernig gengur meS sérskólann fyrir mjög séinþroska börn? „Þetta er annað árið, sem Höfða- skóli starfar. Þar eru n ú 4 bekkjar- deildir, samtals nær 40 börn. Sálfræði- deild skóla annast rannsókn á þeim börnum, sem til greina kemur að sæki skólann. Foreldrar taka sjálf endanlega ákvörðun um, hvort þau láta barnið fara í þennan skóla. Ég held, að óhætt sé að fullyrða, að foreldrar hafi góða reynslu af skólanum. Margir foreldrar segja, að framfarir barnsins hafi auk- izt að mun eftir að þau byrjuðu í skól- anum, eri hitt sé þó meira um vert, að líðan þeirra sé betri en áður. Börn þau, sem hér um ræðir, hafa mörg orðið fyrir ýmsum áföllum, sýk- ingu á fósturskeiði, fæðingaráverkum, slysum eða veikindum síðar. Námshæfi þeirra er mjög skert og oft eru líka önnur afbrigði samfara. Þau þurfa því alveg sérstakt námsefni, kennsluað- ferðir og skólaumhverfi. Nemendatala í bekk á ekki að fara fram úr 10. Magn- ús Magnússon kennari hefur veitt skól- anum forstöðu og unnið ágætt byrjun- arstarf við skólann. Ingibjörg Stephen- sen talkennari veitir börnum, sem þess eru talin þurfa, talkennslu.“ -— HvaSa verkefni eru mest aSkall- andi í skólunum? „Það er erfitt að segja. Af einstökum verkefnum mundi ég halda að einna brýnust væri þörfin á aðstoð við börn með lestrarörðugleika. Þyrfti að skipu- leggja betur byrjunarkennslu í lestri, leshjálpina og einstaklingskennslu fyr- ir ólæs og treglæs böm. E. t. v. væri heppilegast að koma upp sérstakri „læseklinik“ í þessu skyni. Því lengur sem ég vinn að vanda- málum skólabarna, því betur sannfær- ist ég um nauðsyn þess, að foreldrar og kennarar vinni saman. Samstarf þeirra krefst tíma, háttvísi og lagni. En heppnist slíkt samstarf, mun fátt líklegra til að stuðla að velgengni barnsins í skólanum.“ ☆ Blaðið þakkar þeim Ragnari Georgs- syni og Jónasi Pálssyni fróðleg og greinargóð svör — og óskar hinni ný- lega stofnuðu Sálfræðideild skóla góðs gengis. 30 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.