Foreldrablaðið - 01.01.1962, Síða 21

Foreldrablaðið - 01.01.1962, Síða 21
þjóðin tekur þátt í beint eða óbeint, eru háðar, og er þetta gott og lyftir okkur fremur en það gagnstæða til meiri menningar. En svo sneiddir höfum við verið löngun til keppni á því sviði, sem ég hef gert að umræðuefni nú, að þar komumst við ekki í hálfkvisti. Mér finnst að samanburði loknum á því, hvað aðrar þjóðir hafa gert fyr- ir sín olnbogaböm, hljótum við að bera kinnroða sem menningarþjóð, vegna þess, hve langt við stöndum að baki frændþjóðum okkar á þessum vettvangi og hve lengi það hefur viðgengizt. Ég sé enga sjálfsagðari lausn á þessu máli en þá, að koma á heildarlöggjöf um allt, sem að kennslu og uppeldi þess.. hóps nemenda lýtur, sem ég hef gert að umræðuefni hér. Með þeim lögum yrði að sjálfsögðu leystur sá vandi, sem lýtur að menntun hjálpar- og sérkenn- ara og annars starfsfólks, sem til starfa yrði kvatt, þegar þessi mál komast í við- unandi horf. Það er því brýnt verkefni fyrir fræðsluyfirvöld landsins að láta semja og samþykkja löggjöf um þetta, og þar sem svo merk tímamót eru í sögu skólamála höfuðstaðarins, en skóla- hald er 100 ára þar á þessu ári, fynd- ist mér rétt, að þessu máli væri hrund- ið í framkvæmd með undirbúningi, áð- ur en löggjafarþing landsins kemur saman næst. Magnús Magnússon. FORELDRABLAÐIÐ 19

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.