Foreldrablaðið - 01.01.1962, Side 23

Foreldrablaðið - 01.01.1962, Side 23
Helga Magnúsdóttir: Skyggnzt um í skólum Hamborgar Erindi flutt í Melaskóla 25. nóv. 1962, á aðalfundi Stéttarfélags barnakennara í Reykjavík. Ég vil taka það fram nú þegar, að það, sem ég segi frá Hamborg, er aðeins það, sem ég hef séð og heyrt orlofsár mitt 1959—60. Eins og við vitum, er Freie und Hanse Stadt, Hamburg, eitt af sam- bandslýðveldum Þýzkalands. Hamborg er því sjálfstæð í sínum málum, og má ekki álykta, að það, sem sagt er frá, eigi við allt landið, heldur þetta eina ríki. Margt af því, sem ég sá þama og heyrði, fannst mér athyglisvert, annað alls ekki. Ég geri ráð fyrir því, að það, sem ég man til frásagnar í dag, tilheyri því athyglisverða, hinu hef ég víst al- gjörlega gleymt og kastað því í hið étæmandi góða djúp, gleymskunnar haf. Þegar útlendingur á að fara í heim- sókn í skóla í erlendri borg, hlýtur hans fyrsta verk að vera að leita uppi göt- Una og finna húsið. Beinist því athygl- ln fyrst að skólahúsunum ytra séð. Éinnst mér því ekki úr vegi að gefa af þeim örlitla mynd í upphafi, því að vel eru þau þess verð. Skólahúsin eru öll yfirleitt ný, þ. e. a- s. byggð eftir 1950, sárafá em til frá því fyrir stríð. Allt er gert til þess að gera þau hent- ug til kennslu og aðlaðandi um leið. Áður fyrr voru skólahúsin byggð allt að 5 hæðir og kjallari. Geta má nærri, hversu mikill tíma fór í að komast inn og út, enda slíkt og þvílíkt óþarfa slit á kennumnum, eins og einn kennari komst ,að orði við mig. Eftir 1950 hefur því mestmegnis, að ekki sé sagt eingöngu, verið byggð einn- ar hæðar hús á stórum og rúmgóðum lóðum. Hverjar 2 kennslustofur hafa sameiginlegan gang. Sé nú skóli tví- lyftur, þá em 4 kennslustofur um sama gang. Allir gluggar em feiknastórir, bæði á göngum og kennslustofum. Það, sem einna fyrst vakti athygli mína, er inn í skólastofu kom, voru gluggarnir, af því að þeir vom á tveim- ur veggjum stofunnar. Suðvesturglugg- ar frá lofti og svo gott sem niður í gólf, en að vísu voru undir þeim lágir ofnar eða þá skápar. Gagnstætt þessum gluggum vom svo lágir gluggar uppi undir lofti. Undir vegg þeirra voru oft og einatt korktöflur. Skólataflan er svo FORELDRABLAÐIÐ 21

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.