Foreldrablaðið - 01.01.1968, Blaðsíða 5

Foreldrablaðið - 01.01.1968, Blaðsíða 5
ÁRNI ÞÓRÐARSON: Hvernig er unnt að eila máljiroska barna? Skólaskylda sex ára barna er loks að komast á umræðustig hér hjá okkur, og nær allir munu sammála um nauðsyn þeirrar skólalengingar, þrátt fyrir alla okkar þrasgirni og tilhneigingu til and- mæla. Hér má ekki vera um framtíðar draumsýn að ræða, heldur raunhæfa framkvæmd innan skamms tíma. Þarf þegar að hefja skipulegan undirbúning þessarar mikilvægu framkvæmdar. Lög- gjöf hér að lútandi er ef til vill ekki mest aðkallandi, nema þá helzt, hvað undirbúning málsins snertir. Aðstæður þurfa að vera, fyrir hendi til að fram- kvæma annars nauðsynlega löggjöf, þeg- ar þar að kemur, svo að hún verði ekki lífvana tilskipun. Kanna þarf m. a., hversu mikið húsnæði, sem nú er til, sé unnt að nýta fyrir sex ára skólann, og þreifa ætti sig af stað með slíkan skóla sem allra fyrst, áður en ákveðin yrði skólaskylda. En brýnasta og vanda- nresta verkefnið er að búa hóp kennara til starfa, sem eiga og hljóta að verða með öðrum hætti en nú eru algengust í almennum barnaskólum. Eitt af mörgum verkefnum smábarna- skólans verður að leitast við að efla málþroska nemenda á hagkvæman og starfrænan hátt. Það mun sannmæli flestra, að málþroska barna og unglinga fari hnignandi. Þegar á allt er litið, er það reyndar ekki óeðlilegt, þótt ekki beri að sætta sig við það sem sjálf- sagðan hlut, óviðráðanlegan. Gjörbreytt- ir heimilis- og þjóðfélagshættir og margs konar ytri aðstæður stuðla að því, að fjöldi barna hefur nú minni og á ýmsan hátt lakari möguleika en áður til þess að nema gott, almennt mál með fjöl- breytilegu orðavali af mæli fullorðinna. Er sú saga öll svo alkunn og margrædd, að ekki verður frekar rakin hér. Málþroski sjö ára barns, er það kemur í skólann, getur haft mikilvæg og varan- leg áhrif á líðan þess og gengi í skól- anum. Hver dagur þarf helzt að veita því starfsgleði og aukið sjálístraust, en þess er ekki að vænta, ef það skilur naumast mál kennarans og jafnvel sumra skólafélaganna og á erfitt með að koma á framfæri hugmyndum sínum og áhuga- málum, vantar orð yfir það, sem það langar að segja. Skólarnir bæta nokkuð úr smátt og smátt, en þeir eru seinvirkir FORELDRABLAÐIÐ 3

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.