Foreldrablaðið - 01.01.1968, Blaðsíða 34

Foreldrablaðið - 01.01.1968, Blaðsíða 34
Málið okkar er viðkvæmt Úr fjörugu máli fegri sprett fékk ei neinn af sveinum, hjá pér bæöi lipurt og létt, lá paö á Tcostum hreinum. Þannig orti Grímur Thomsen um Jónas Hallgrímsson. Vísan er snjöll, og það, sem í henni felst, satt. Jónas kunni þau tök á málinu, að það fór á kostum hjá honum eins og gæðingurinn gerir hjá þeim manni, sem kann bæði taumhald og ásetu. Við efumst ekki um, að Jónas hafi verið fæddur listamaður — skáld, en þó er líklegt, að hann hafi nokkuð þurft að hafa fyrir því að ná þeim tök- um á málinu, sem hann hafði. Og þótt það sé ekki á allra færi að komast þar til jafns við hann og aðra snillinga í meðferð tungunnar, er víst, að flestum er mögulegt að ná nokkrum árangri, ef þeim er alvara að vilja. Já, ef við hefð- um næma tilfinningu fyrir málinu, mund- um við vanda okkur meira og ekki láta okkur standa á sama, hvernig við böðl- um því út úr okkur. Fagurt talmál er eins og kona á skautbúningi, þar sem óvandað mál minnir á tötrughypju. Ef þú, lesari góður, hefur löngun til að gefa gaum af þínu eigin málfari og annarra, þá eru hér nokkur atriði til að byrja með. Oft heyrast ræðumenn taka svo til orða: „En þegar þetta er tekið til at- hugunar, að þá kemur í ljós“ o. s. frv. Eða: „Ef ekki verður horfið frá þessu, að þá mun“ o. s. frv. Þessu uö pá er sannarlega ofaukið og ekki prýði á ræð- unni? Finnurðu merkingarmun, eða a. m. k. blæmun á eftirfarandi dæmum teknum úr algengu máli, töluðu og rituðu? Mér finnst þetta gott. Mér þykir þetta gott. Mér fannst gaman. Mér þótti gam- an. Mér finnst vænt um hann. Mér þykir vænt um hann. Málkennd mín er sú, að í þessum dæm- um sé eðlilegra að nota sögnina að pykja. Hefurðu tekið eftir, hvemig orðunum eitthvaö og eitthvert er ruglað saman bæði í rituðu og töluðu máli? Dæmi: Þarna sé ég eitthvað dýr, í stað eitt- hvert dýr. Hefurðu veitt því eftirtekt, hvernig sögnin aö skapa hefur þrengt sér inn í málið? Því virðast lítil mörk sett, hvað menn geta skapað, og þar með eru þeir allir orðnir skaparar. Að vísu mun það sjaldan koma fyrir, að mönnum sé gefið það heiti, en eftir orðanna hljóðan hlýt- ur sá að vera skapari, sem skapar eitt- hvað. Spurningin er: Skapa menn nokk- urn tíma nokkuö? Ofnotkun orða er eitt, sem lýtir rit- mál margra. Lifandi mál stendur ekki í stað, og það er ekki heldur æskilegt. En þess skyldi gætt, þegar ný orð og orðasambönd eru tekin inn í málið, að þau útrými ekki alveg góðum og gild- um orðum sömu merkingar. Ekki er langt síðan farið var almennt að nota 32 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.