Foreldrablaðið - 01.01.1968, Blaðsíða 6

Foreldrablaðið - 01.01.1968, Blaðsíða 6
og ná því miður oft of skammt. Aðstaða þeirra er líka sérstaklega erfið í þess- um efnum. Margt í deild, svo að tæp- ast er unnt að ná til einstaklinga og dag- legur skólatími hvers nemenda mjög stuttur. Önnur öfl utan skólanna verða því áhrifaríkari m. a. vegna þess, að þau hafa yfir miklu meiri tíma barns- ins að ráða. Meðan ekki eru til smábarnaskólar með sérmenntuðu starfsliði fyrir aldurs- stigið fjögra til sex ára, en þeirra er mikil þörf, hvílir skyldan á heimilun- um að leitast við að búa börnin af beztu getu undir núverandi almenna skólann. Það verður ekki endilega bezt gert með því að kenna þeim að lesa, skrifa og reikna, eins og áður var full þörf á, þegar skólagangan hófst síðar. Hverju barni er nauðsynlegt til andlegrar vel- líðunar, að við það sé talað um þess hugarheim, áhugamál og daglega reynslu. Fyrsta boðorð foreldra verður því aö gefa sér tíma til þess aö tala við barniö sitt. Ung böm eru spurul, forvitin. Spurn- ingum þeirra verður að leitast við að svara af áhuga og einlægni, en ekki út í hött eða bæla þær niður. Ala ætti á heilbrigðri forvitni þeirra og reyna að svala henni, en ekki kæfa. Lesa þarf fyrir börnin eða segja þeim skemmti- legar sögur, kenna þeim léttar vísur og vers og þá einkum, sem létt og þekkt lög eru við. Leiðrétta verður mein- legar málvillur, svo að þær festist ekki í máli. Minna þarf á skýran framburð, þótt daglegt fordæmi verði þar þyngst á metum. Á vissu þroskastigi vilja flest börn heyra sömu söguna eða fáar, sem verkað hafa sterkt á þau, aftur og aftur. Er sjálfsagt að verða við þessum ósk- um. Barnið lærir söguna utan að efnis- lega og um leið hefur því skapazt ákjós- anlegt tækifæri til eigin frásagnar. Er þá oft skipt um hlutverk, barnið verð- ur sögumaður, en þá þarf leiðsögumað- urinn að vera jafnáhugasamur hlust- andi og barnið var áður. Foreldrar eiga nú ekki kost á einfaldri, aðgengilegri fræðslu um, hvað þeir geti helzt gert til að auka málþroska og bæta málfar barna sinna. Hér þyrfti úr að bæta og koma til móts við góðan vilja margra foreldra í þessu efni.' Ef til vill er unnt að taka saman stuttar, hnitmiðaðar leiðbeiningar, sem síðan séu gefnar út í aðgengilegu formi og dreift til heimila bamanna. Boða ætti forráða- menn barna innan skólaskyldualdurs í hverju skólahverfi til funda stöku sinn- um, þar sem flutt væru erindi og spurt og spjallað. Þá er eflaust hægt að koma á framfæri umræðu- og fræðsluþáttum í sjónvarpi og útvarpi. Sitt hvað fleira má væntanlega gera umráðamönnum barna til leiðbeininga í þessu mikilvæga máli. Er ekki til athugunar fyrir sam- tök kennara, t. d. Stéttarfélag barna- kennara í Reykjavík og Samband ís- lenzkra barnakennara að taka þetta mál til fyrirgreiðslu og þoka því áleiðis? Félagssamtök kvenna ættu hins vegar að taka skólamál smábama — fjögra til sex ára — á sína arma í fyrstu lotu, beina samtakamætti sínum til að komið verði á fót fyrirmyndar smá- bamaskólum, þar sem meðal margs ann- ars börnin væru studd styrkri en mjúkri hendi fyrstu skrefin á langri og nokkuð torsóttri leið aö lœra aö tala og skilja mál sinnar þjóöar, móöurmálið sitt. Þar þarf vel til að vanda. Ekkert nema það bezta er nógu gott. Þetta hlýtur að vera verðugt verkefni íslenzkra mæðra. 4 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.