Foreldrablaðið - 01.01.1968, Blaðsíða 21
HVER ER UNGUR?
í síðasta Foreldrablaði var kafli úr
erindi eftir Grétar Fells, rithöfund, þar
sem fiallað var um æsku og elli. Var því
haldið þar fram, að hin sanna æska væri
ekki bundin aldri að árum. Um þetta
fórust höfundi m. a. svo orð:
„Það að vera ungur að árum er ekki
sama sem að vera raunverulegur æsku-
maður eða ungur í anda. Sú æska, sem
við eigum að þrá, er e k k i sú æska,
sem aðeins er mótsetning elli eða and-
stæða hennar, heldur sú æska, sem er
að baki báðum andstæðunum, hin eilífa
æska.“
Doktor Sigurður Nordal segir svo í
bók sinni ÁFÖNGUM:
„Þroskatilhneigingin virðist vera
mannleg eðlishvöt. Um leið og okkur
hættir að fara fram, höfum við misst
eitthvað, sem verður ekki bætt með
neinu öðru. En maðurinn er þannig gerð-
ur, sem betur fer, að honum getur verið
að fara fram á einhvem hátt allt til
dauðadags, meðan hann hefur ráð og
rænu. Ef til vill er ekkert fegurra í
lífinu en að kynnast hrörnandi gamal-
menni, sem alltaf er að vaxa að þolin-
mæði, mildi og manngæzku, tekur elli-
mörkum með lotningu og undirgefni við
lífsins órjúfanlega lögmál, hugsar til
allra gjafa síns liðna lífs með þakklæti
og varpar aftanskini af friði í kringum
sig. Og fátt er raunalegra en að heyra
menn, sem ættu enn að vera á ríkasta
þroskaaldri, tala um æskuárin sem
horfna paradís.
Æska mannsins er ekki bundin við
neinn aldur. Það eru til örvasa ung-
menni og aldnir spekingar með barns-
hjarta. Æskan er gróandi sálarinnar og
endist nákvæmlega jafnlengi og þessi
gróandi“.
Og hvað hefur svo Jónas Hallgrímsson
um þetta að segja?
Hvað er skammlífi?
Skortur lífsnautnar,
svartrar svefnhettu
síruglað mók.
Oft dó áttræður
og aldrei hafði
tvítugs manns
fyrir tær stigið.
Hvað er langlífi?
Lífsnautnin frjóva,
alefling andans
og athöfn þörf.
Margoft tvítugur
meir hefur lifað
svefnugum segg,
er sjötugur hjarði.
FORELDRABLAÐIÐ 19