Foreldrablaðið - 01.01.1968, Blaðsíða 36

Foreldrablaðið - 01.01.1968, Blaðsíða 36
Frá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur Samkvæmt íbúaskránni og spjaldskrá fræðsluskrifstofu Reykjavíkur eru nú búsett í borginni 9904 börn á barna- fræðslualdri (7—12 ára). Af þeim eru 8878 í barnaskólum borg- arinnar, og er það svipaður fjöldi og var í skólunum s. 1. vetur. Eins og að und- anförnu eru allmörg börn í öðrum skól- um en barnaskólum borgarinnar, eink- um í skóla ísaks Jónssonar, æfingadeild Kennaraskólans og Landakotsskóla. Þá eru ætíð fáein börn, sem njóta sérkennslu utan skólanna vegna vanheilsu eða van- þroska. Ennfremur dvelja nokkurn börn utan borgarinnar. Samtals eru bekkjardeildir barnaskól- anna 351 talsins, og eru þá að meðal- tali 25,3 börn í deild. Bamaskólar borgarinnar eru nú 14 að tölu. Fjölmennastir eru Melaskóli með 1055 börn í 38 deildum, Breiðagerðis- skóli með 982 börn í 37 deildum og Álftamýrarskóli með, 897 börn í 32 deildum. Við barnaskólana starfa nú 289 fastir kennarar, að skólastjórum meðtöldum, og auk þeirra 69 stunda- og forfalla- kennarar. í gagnfræðaskólum Reykjavíkur eru nú 5248 nemendur samtals. Fjölgun frá s. 1. vetri er 100 nemendur. Bekkjar- deildir gagnfræðaskólanna eru alls 196, eða 26,8 nemendur í deild að meðal- tali. Kennsla á gagnfræðastigi fer nú fram á 15 stöðum í Reykjavík. Þar af eru 8 barnaskólar ,er einnig hafa gagnfræða- deildir. Fastir kennarar gagnfræðaskólanna eru 222 og stundakennarar 103. Fjöl- mennasti gagnfræðaskólinn er Hagaskóli með 806 nemendur í 28 bekkjardeildum, þá gagnfræðadeild Vogaskóla með 709 nemendur í 25 deildum og Réttarholts- skóli með 672 nemendur í 24 deildum. Samanlagður nemendafjöldi barna- og gagnfræðaskólanna er 14.126 nemendur í 547 bekkjardeildum. Verður þá Voga- skóli fjölmennastur með samtals 1584 nemendur í 59 bekkjardeildum. Fjölgunin í skólunum er nokkuð mis- jöfn ár frá ári og er hún nú með minnsta móti. Að venju er unnið að byggingu nýrra skólahúsa á nokkrum stöðum í borginni. Samið hefur verið við verktaka um bygg- ingu 3. áfanga Álftamýrarskóla, en það er kennsluálma með 7 stofum og íþrótta- hús. 1 Árbœjarskóla hófst s. 1. haust kennsla í 1. áfanga nýs skólahúss og er unnið að stækkun þess. Við Langholts- skóla var tekinn í notkun nýr áfangi s. 1. haust, en í þeirri álmu er m. a. kennslu- eldhús og eðlisfræðistofa. Við Voga- skóla eru hafnar framkvæmdir við loka- áfanga skólans með almennum kennslu- stofum, sérkennslustofum, leikfimi- og samkomusal, húsnæði fyrir skólastjórn o. fl. Lokið er við að teikna Breiðholts- skóla. Unnið er að teikningu að loka- áfanga Hlíðaskóla. Þá er undirbúin stækkun Hvassaleitisskóla og lausn á 34 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.