Foreldrablaðið - 01.01.1968, Qupperneq 8
Maturinn, sem flestir borða nú á dög-
um, er þannig tilreiddur, að tennurnar
verða alltaf meira eða minna óhreinar
eftir að borðað er, og þá er tannburstinn
bezta hjálpin, til þess að losna við matar-
leifar og þá hættulegu sýru, sem í matar-
leifunum myndast, ef þær fá að vera
kyrrar í munninum, þó að það sé ekki
lengur en nokkra klukkutíma. Gott er,
að burstinn sé ekki mjög stór og ekki
mjög þéttur. Aftur á móti þarf skaftið
að vera þannig, að gott sé að halda í
það. Bursta skal þannig: í efri góm frá
tannholdinu og niður, í neðri góm frá
tannholdinu og upp. Nauðsynlegt er að
bursta tennurnar bæði að utanverðu,
innanverðu og ofan á, en sérstaklega er
það nauðsynlegt að bursta vel að utan-
verðu, aftast. Hvað tannkrem varðar,
er betra að nota þær tegundir, sem eru
blandaðar með fluor.
Foreldrar, hjálpið börnum ykkar og
leiðbeinið þeim við að bursta tennurnar
vel og rétt. Góð regla er að bursta tenn-
urnar tvisvar á dag, á morgnana og
kvöldin, rétt áður en börnin fara að sofa,
en ennþá betri regla er að bursta tenn-
urnar eftir hverja máltíð. Tannburstun
er alveg eins nauðsynleg og þvottur og
böðun.
Á undan matnum þvoum við hend-
urnar.
Á eftir matnum burstum við tenn-
urnar.
Gott er að eiga tvo bursta, sem not-
aðir eru til skiptis, svo að annar þeirra
sé alltaf þurr.
Starf skólatannlœknisins.
Börn þurfa helzt að koma reglulega,
tvisvar á árinu, til tannlæknis, frá 3-ára
aldri, svo að hægt sé að fylgjast með
og gera við barnatennurnar strax, ef
þær byrja að skemmast. Skólatannlækn-
irinn athugar fyrst og fremst fullorðins-
tennurnar. Skemmdar -fúllorðinstennur
er venjulega gert við með silfri. Undir
erfiðum kringumstæðum er stundum
lögð bráðabirgðafylling, sem seinna verð-
ur skipt í varanlega fyllingu. I tannað-
gerðum er líka innifalið tannhreinsun,
penslun, burstun og skolun með fluor-
upplausn.
Eftir mjög nákvæmar og langvarandi
rannsóknir, er það örugglega sannað, að
þess konar meðferð með fluor minnkar
tannskemmdir barna um allt að helming,
ef meðferðin er endurtekin 3—4 sinnum
á ári hverju.
Heimilið þarf að hjálpa.
Heimilin verða að reyna að sjá um,
að börnin mæti í skólann með vel burst-
aðar tennur. Á meðan börnin eru í skól-
anum, er síður hægt að bursta tenn-
urnar, þess vegna er það mjög æskilegt,
að þau hafi með sér í nestinu epli, gul-
rót eða gulrófubita, sem gott er að naga,
eftir að brauðið er borðað.
Ef í ljós kemur, að efnið í tönnum
barns yðar, er ekki vel gott, þá er mjög
áríðandi að gæta þess, að ekki sé borð-
að mikið af mjúku, fínu brauði eða
sætindum. Sérstaklega er slæmt, ef sæl-
gæti er borðað milli mála.
Aðeins ef komið er nógu snemma til
tannlæknis, er venjulega auðvelt að gera
við skemmda tönn, en munið, að við-
gerð tönn, sama hvað vel er gert við
hana, getur aldrei orðið sambærileg heilli
og óskemmdri tönn. Þess vegna er þetta
bæn okkar til ykkar foreldra: Reynið
að hjálpa okkur, skólatannlæknunum, að
Jcoma í veg fyrir, að tennurnar skemm-
6 FORELDRABLAÐIÐ