Foreldrablaðið - 01.01.1968, Qupperneq 22
LESEFNI FYRIR BDRNIN
Draumur
Dóru
Dóra kom heim úr skólanum nokkru
fyrir hádegi. Veður var heitt, enda kom-
ið fram á sumar. Hún lagði frá sér
skólatöskuna og flýtti sér inn í garð-
inn. Þar átti hún sér uppáhaldsstað á
grasflöt undir limríku eplatré. Þar var
skuggsælt í heitu sólskininu. Gatan lá
meðfram garðinum, og var auðvelt að
sjá út á hana gegnum rimlagirðinguna.
Dóra lagðist endilöng í grænt, svalt
grasið og horfði ýmist upp í bláan him-
ininn, á græna grasfletina, eða stóru,
skuggsælu trén.
Ekki hafði hún legið þarna lengi, þeg-
ar hún heyrði létt fótatak eftir malbor-
inni götunni fyrir utan. Lítil stúlka, fá-
tæklega klædd, var þama á ferð og gekk
hratt í steikjandi sólskininu. Hún bar
tvær körfur, sína í hvorri hendi, og er
hún kom að garðinum á móts við Dóru,
setti hún þær niður til að hvíla sig að-
eins.
„Jetta“, kallaði Dóra, „hvert ertu að
fara í þessum mikla hita? Komdu held-
ur hingað inn í garðinn, þar er ekki eins
heitt, og við getum leikið okkur dálitla
stund. Ég skal undir eins opna hliðið“.
„Nei, nei“, kallaði Jetta og bandaði
frá sér með hendinni. „Þér skuluð bara
vera þama áfram. Ég verð að flýta mér
út að grjótnámunni með matinn handa
pabba, hann hefur ekki tíma til að ganga
heim til að borða“. Móðir Jettu var
þvottakona og hafði oft þvegið á heimili
Dóm, þess vegna hafði Jetta vanizt því,
að þeirrar tíðar sið, að þéra Dóru og
ávarpa hana fröken, þótt þær væru næst-
um jafnaldra.
„Nú“, sagði Dóra alveg hissa, „þá
20 FORELDRABLAÐIÐ