Foreldrablaðið - 01.01.1968, Qupperneq 31

Foreldrablaðið - 01.01.1968, Qupperneq 31
málefnis og þeim árangri, sem þá hafði náðst. Hann hafði þá látið gera kvik- myndina Úr dagbók lífsins, sýnt hana hér í Reykjavík, ferðast með hana um Suövesturland og að nokkru um Suður- land. Næsta sumar (1964) var farið um Austurland og Norðurland til Eyja- fjarðar. Var ég með Magnúsi á þessu ferðalagi, og þótti mér það bæði fróð- legt og skemmtilegt. Aðsókn að sýning- unum var yfirleitt mjög góð, þótt auð- vitað gæti út af brugðið, því að þetta var um síldveiðitímann og fyrir kom, að nýbúið var að landa síld til söltunar, þegar okkur Magnús bar að garði. Gam- an er þó að geta þess hér, að á einum stað, þar sem svo stóð á, var söltun frestað, þar til sýning var afstaðin. Sýnir það óvenjulegan áhuga. Mér varð það vel Ijóst í þessari ferð, að Magnúsi tókst að vekja athygli fólks og áhuga á mikilvægi málsins og um leið löngun til þess að styrkja það. Kom það m. a. fram í rausnarlegum gjöfum inn á söfnunarbók þá, sem fylgt hefur kvikmyndinni. En í þá bók rita þeir nöfn sín, sem sérstaklega vilja styrkja þessa starfsemi með fégjöfum, um leið og þeir afhenda upphæð að eigin vild (lágmark þó kr. 50). Ég hafði umsjón með bókinni á þessu ferðalagi, og hafði mikla ánægju af. Næsta sumar var haldið áfram um Norðurland vestanvert og Vestfirði. Hafði Magnús þá ferðazt með myndina um allt landið að kalla. En hann var nú ekki alveg á því að leggja upp árarnar og hætta róðrinum. Nú undirbjó hann happdrætti. Vinningsnúmerin voru 200 að tölu, allt úrvalsteikningar og málverk skólabarna og unglinga í Reykjavík. Var það allt gefið með gleði, og vildu Gísli og Arnþór. gjarnan fleiri leggja fram sinn skerf, en því miður var ekki hægt að taka við öllu, sem fram var boðið. En þama var æskan að vinna fyrir sjálfa sig. „Og það var ánægjulegt", segir Magnús. Tvö síðastliðin sumur hefur hann ferð- ast um landið og haldið samkomur, þar sem blindu tvíburarnir, Arnþór og Gísli Helgasynir úr Vestmannaeyjum, léku á hljóðfæri. En á þessum samkomum voru happdrættismiðarnir seldir. Mun þetta hafa orðið alldrjúg tekjulind. Þannig er Magnús búinn að ferðast tvisvar sinnum um landið til þess að kynna áhugamál sitt og afla fjár til þess. En ekki hefur alls verið getið. Minningarkort og jólakort hefur hann látið gera og selja, gjafalistar hafa ver- ið sendir í skip og víðar. Og enn er hafizt handa. Fyrir nokkru byrjaði Magnús að sýna myndir úr þorskastríðinu svo nefnda, en þar er átt við viðureign íslenzku landhelgisgæzl- unnar við brezka togara eftir að land- helgin var stækkuð í 12 mílur. Garðar Pálsson, skipherra, hefur tekið og lánað þessar myndir, en Eiríkur Kristófers- ) FORELDRABLAÐIÐ 29

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.