Landneminn - 01.03.1948, Page 3

Landneminn - 01.03.1948, Page 3
LANDIYEMlNW Ctgcjandi: Æskulý&sjylkingin samband ungra sósíalista. Ritstjóri: Jónas Arnason. 3. tölublað Marz 1948 2. árgangur Eru svikin við æskuna óviljaverk! Eftir Stefán Ögmundsson Það væri fullkomið vanmat ;í vitsmunum op; klækiþorsta íslenzkra valdhafa að afsaka fram- komu þeirra gagnvart æskulýðnum á sarna hátt og illvirkjanna, sem forðum var talið það til afbötunar að þcir vissu ekki livað þeir gerðu. Það fer ekki hjá því, að þeir scm af athygli hlýða á andvörp þessara berra á hátíðlegum stundum, þegar texti dagsins er „hið unga ísland“, verði þess vísari, að þar tala nienn, sem vita hvaða skyldur þeir hafa við æsku- lýðinn sem heild. Með hástemdum klökkva flytja þeir okkur þann sannleik að miða beri stefnuna við þarfir framtíðarinnar, þeirrar æsku sem í landinu býr, þarfir bernskunnar, sem er að vaxa og þeirra, sem ófæddir eiga að erfa landið. Svo andheitar eru þessar yfirlýsingar oft og tíðum, að ýmsir trúa, að bak við þær liggi ein- 'æg áform, og allt verði látið víkja fyrir hinu >.eina nauðsynlega", að hlúa að þroska æskulýðs- ms án tillits til þess, hvers sonur eða dóttir barn- tð er. Og því finnst mörgum það ofur eðlilegt að ástríku yfirvaldi bregðist rómur og augun fái annan glans á hátíðisdegi barnanna 1. sum- ardag, en aðra daga ársins. En íslenzk alþýða hefur alltaf þótt vanþakk- lát yfirmönnum sínum. Og enn finnst okkur, sem lifum lífi hennar á rúmhelgu dögunum, það ómaksins vert að hugleiða muninn á ræð- um hátíðisdaganna og framkomu þeirra manna, sem velferð okkar ráða aðra daga. Enda þótt hreinhjörtuðum borgurum kunni að þykja það ósiðlegt að komast að ljótri niðurstöðu um tilgang fagurra yfirlýsinga, verð- ur ekki fram hjá því gengið, að ósamræmið milli orða og athafna þeirra sem málefnum æskulýðsins stjórna, hlýtur að vekja þann grun margra, að fagurmælin séu fyrst og fremst við- brögð vondrar samvizku. ★ Þannig hafa umþenkingar alþýðunnar á „svörtu dögunum", eins og börnin kalla þá, fært henni þann skilning að fulltrúum peninga- valdsins í lands- og bæjarstjórnum, sé það ekki aðeins ljóst hverjar skyldur þeirra við æskulýð- inn eru, heldur sé þeim önnur vitneskja ennþ;í ríkari í huga og það er hættan, sem af því mundi stafa yfirráðum þeirra, ef æskulýðurinn nyti þeirra þroskaskilyrða, sem ræður þeirra prísa LANDNEMINN 3

x

Landneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.