Unga Ísland - 01.07.1931, Blaðsíða 2

Unga Ísland - 01.07.1931, Blaðsíða 2
50 UNGA ISLAND Gido Reni. Fyrir meira en þremur öldum fædd- ist fagur, svarteygur drengur í Bologna á ftalíu. Faðir hans var söngvari. Hann leit oft mjög hrifinn á litla drenginn og sagði: »Þetta barn er alveg eins og engill. Við verðum að láta hann læra að s,yngja«. Gídó óx, og faðir hans kendi honum að leika á hljóðfæri og syngja. Hann gerði hvortveggja vel, en það var annað, sem honum þótti enn meira gam- an að, þaó var að mála. Hann teiknaði og málaói á alla brjefsnepla, sem hann náði í. En faðir hans ljet taka frá hon- um öll tæki til að teikna. Þá dró hann á rykið á stjettinni og þil og veggi. Faðir hans reiddist af þessu, því að hann hafði ákveðið að gera úr honum söngfræðing. Einn dag kom frægur málari á heim- ilið. Hann fjekk að sjá myndirnar, sem Gídó hafói dregiö. Með miklum erfiðis- munum tókst honum að telja föður hans trú um, að drengurinn væri efni í mik- inn listmálara. Eftir þetta fjekk Gídó kennara og fjekk að mála. Kennari hans ljet hann oft kenna hinum nemendunum. Heitasta ósk Gídós var uppfylt. Hann varð listamaður, en ekki eins mikill og búist var við. Frægustu málverk sín gerði hann á mjög ungum aldri. Með aldrinum h'neigðist hann að fjárafla og gróðahygg-ju, málaði ekki til þess að ná sem mestri fegurð og fullkomnun, heldur reyndi hann að vera sem fljót- astur og selja sem mest. Af þessu urðu verk hans flaustursleg og óvönduð. Síð- ari myndir hans eru nú gleymdar. En þær, sem hann gerði í æsku, meðan hann elskaði listina umfram alt annað, þær eru heimsfrægar og virtar og dáð- ar meira en fyrir þrjú hundruð árum. Hin fegursta og frægasta af öllum myndum Gídó Renis er Áróra. Hann málaði hana á loftið í höll einni í Róm. Þar má sjá hana enn í dag fulla af lífi og litadýrð. Þar er heil sveit guða. Svip- göfgi, fegurð og hamingja ljómar í hverju andliti. Allar eru myndirnar á hreyfingu, því að hver um sig hefir verk að vinna að heill og gleði jarðarbúa. Fegurst allra er Áróra sjálf, þar sem hún siglir á skýjunum á undan góóhest- um sólguösins, og dreifir dimmunni og fyllir heiminn af morgunljóma. Æfmtýri. Þegar jeg var lítil, var mín besta skemtun að heyra sagðar sögur. Amma kunni flestar. 1 rökkrinu, þegar hún ýtti frá sjer rokknum og tók prjónana ofan af hillu, var jeg vön að setjast á rúm- stokkinn hennar og biðja um sögu. — Stundum sagði hún mjer frá því, þeg- ar hún var lítil, hvernig krakkarnir ljeku sjer í þá daga, en mest kunni hún af æfintýrum. Eitt æfintýrió hennar ætla jeg að segja ykkur. Einu sinni í fyrndinni lifóu vellauðug hjón. Þau bjuggu á stóreflis búgarði og höfðu margt þjónustufólk. Kringum höll þeirra var inndælis aldingarður, með fögrum jurtum, stórum trjám og gos- brunnum. Lengra út frá voru víðlend- ir akrar og engi. Samt voru hjónin ekki ánægð, þau áttu ekkert barn, það var það eina, sem skygði á hamingju þeirra. En svo bar við eitt sinn, er óskagyðjan átti þarna leið um, að hjarta hennar

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.