Unga Ísland - 01.07.1931, Blaðsíða 3

Unga Ísland - 01.07.1931, Blaðsíða 3
51 UNGA ÍSLAND hrærðist til meóaumkunar. Hjónin eign- uóust son. Mikil gleóihátíó var haldin, stórgjöfum var útbýtt meðal fátæklinga, foreldrarnir voru svo innilega ham- ingjusöm og vildu aó allir aðrir væru baó líka. Drengurinn var lagóur í skin- andi vöggu, frióur og ánægja ríktu á heimilinu. Árin lióu, drengurinn óx upp í því mesta dálæti, sem hægt er aó hugsa sjer. þaó var ekkert bað til, er hann baó um, aó foreldrarnir ljetu þaó ekki eft- ir honum, ef þau mögulega gátu. Þannig varó hann heimtufrekari og óþægari meó hverju ári, og loksins fóru foreldr- arnir í gröfina, södd lífdaga. Sonurinn tók við eignunum. en hanr hafói engan dugnaó til aó reka búskap- inn, alt gekk á afturfótunum; aldingaró- urinn fjell í órækt, akrarnir stóóu ósáó- ir og að lokum varð hann skuldunum vafinn. En svo einu sinni, er hann var stadd- ur nióri í kjallara í höll sinni, birtist óskagyójan honum og mælti: »Jeg vil hjálpa þjer til aó verða nýtur maóur; hjer er smá baun, sem jeg ætla að gefa þjer, henni áttu að sá og geyma vand- lega uppskeruna tit næsta vors, sá henni þá aftur, og svo koll af kolli sex ár í röð; gerirðu þetta með nógri nákvæmni, veróur uppskeran sjötta árió gullstangir með skírum gullaldinum«. Óskagyðjan hvarf; hallareigandinn stóó eftir með baunina í hendinni, það var skuggsýnt inni og hann gekk út aó glugganum, til aó sjá betur þessa töfrabaun, en þegar hann hallaói hendinni móti ljósinu, rann hún úr lófa hans nióur á gólf. Hann leit- aói um alt meó logandi ljósi, en það var árangurslaust, töfrabaunin fanst hvergi. En á gólfinu undir glugganum stóð poki fullur af baunum; var nú talið víst, að baunin hefði lent í honum. Það var því ekki um annaó að gera 'en aó sá öllum baununum, þar sem töfrabaunin þekt- ist ekki frá hinum, og það var gert. Um haustið kom mikil uppskera, sem geymd var vandlega til næsta vors og þá sáð. Þannig gekk það, aó með hverju ári margfaldaöist uppskeran, svo að byggja varó stór geymsluhús í. vióbót við þau gömlu. Hallareigandinn varó alveg óþekkjan- legur frá því, sem áóur var. Enginn gekk nú betur fram, nje var ötulli Tdð vinnuna en hann. Sjötta árið var hausts- ins beðið meó mikilli óþreyju; bauna- akrarnir náðu svo langt sem augað eygói. Uppskeran varð geysimikil, en alt var það stórar, þroskaóar baunir, on ekkert gull. öll þessi ár hafði eigandinri ekkert selt af baununum sínum, en nú aug- lýsti hann þær til sölu. Menn streymdu að úr öllum áttum til að kaupa baunir og brátt vissi baunakóngurinn ekki aura sinna tal. En töfrabaunin hafði aldrei lent í baunapokanum. 1 smárifu í kjallara- gólfinu lá hún hulin, en hvað gerði það til? Með dugnaói sínum og- atorku var hallareigandinn orðinn auðugasti mað- ur landsins. S. Þ. Grátitlingurinn. Það var dag nokkurn á áliónu sumri 1929, að við, fólkið í Neðradal, vorum við heyvinnu á mýrinni fyrir neóan bæ- inn. Alt í einu heyrum við þyt, og lít-

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.