Unga Ísland - 01.07.1931, Qupperneq 16
é4
UNGA ISLAND
Bláa kusa.
Þegar jeg var lítill, nálægt fimm ara,
keypti pabbi kú, sem var blá aó lit, og
heldur falleg. og hafói þann ágæta
kost, aó hún var mjög mjólkurhá og
hin mesta þægóar skepna.
Einu sinni man jeg eftir, að pajbbi
sagói: »Ef sú bláa á kvígu næst, þá má
til aó láta hana lifa«. Nú kom aó því,
að bláa kusa átti kálf. Það var kvíga,
kolótt að lit. Var nú sjálfsagt að láta
hana lifa, og nefndi pabbi hana. Lind;
þetta var í tuttugustu vi'ku sumars, og
var nú verið að hugsa um að beita bláu
kusu út um miðjan daginn. Var nú kálf-
urinn tekinn úr fjósinu, svo að hún tyldi
í haga. Kálfurinn var nú látinn inn að
eldavjel, svo aó hann hefði nægan hita.
Þar var hann í tuttugu daga; var hann
þá látinn út í fjós, og hjeldu allir að sú
bláa væri búin að gleyma kálfinum, en
svo var nú samt ekki. Bláa kusa var nú
rekin úit á haga, en þegar hún er að
byrja að bíta, öskrar hún upp og tekur
stökk mikió heim aó fjósdyrum og öskr-
ar þar eins og hún væri trylt. Var henni
þá hleypt inn, og rauk hún þá að kálf-
inum og sleikti hann. Var henni svo
ekki hleypt út oftar það haust, og var
kálfurinn vió hliðina á henni allan vet-
urinn og hafði hún góðar gætur á hon-
um.
Að kusa skyldi þekkja kálfinn sir.n
eftir svona langan tíma, er hún sá hann
ekki, er glöggur vottur þess, hvað skepn-
urnar geta verió minnisgóðar og trygg-
lyndar.
Grímur Einarsson, 12 ára.
UNGA ÍSLAND kemur út í sjö heftum
á ári, off eru 16 síður i hverju. — Veri)
árc/. kr. 2.50. fíjalddagi 1. apríl.
TUtstjnri: Steingrímur Arasnn.
Afgreiósla hjá Sveinabókhandivu,
Laugavegi 17 B. Pósthólf .16.1.
Kolur.
Kolur er góður fjárhundur, geltinn
vel og gott að senda hann. Hann er
lítill vexti og nokkuð loðinn, með laf-
andi eyru og hringaða rófu, gulur á
skrokk, kolóttur um trýnið og' með
svarta fætur. Tryggur er hann og
fylgispakur. Einu sinni sem oftar var
jeg að elta kindur. Hált var og vont
að komast áfram, sluppu kindurnar í
gljúfur og var vont að komast til þeirra.
Varð mjer þá laus stafurinn og' valt
hann ofan fyrir og fór í ána, sem rann
þar neóan undir, og datt mjer ekki í
hug, að jeg mundi sjá hann framar. Jeg
hafði þaó af að komast til kindanna. Þá
var mjer litið aftur, og sje jeg hvar
seppi kemur rogandi með stafinn í
munninum; hafði hann snúió aftur, þeg-
ar jeg misti stafinn og synt á eftir hon-
um og náð í hann. Þaó var auósjeð, að
hann þóttist hafa unnió vel, þegar hann
lag'ði stafinn fyrir fætur mína.
Sólskin er eiguleg bók, sem UNGA ISLAND
gefur öllum borgandi kaupendum blaðsins. Nýii'
kaupendur fá liana einnig, er pað sama og'
heill árgangur blaðsins sé geflnn, því að bókin
kostar 2,50 kr. eins og blaðið. Vinir UNGA
ISLANDS, ættu að segja frá þessum kostaboð-
um, svo að sem flestir geti notað þau, meðan
þau endast.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.