Unga Ísland - 01.11.1939, Blaðsíða 18
140 --------------------------- UNGA ISLAND
Hvað hefir bangsi þessi étið mikið af
kjöti síðastliðinn hálfan mánuð?
íslenskir íþróttamenn
Undanfarin ár hefir jafnan farið
fram skoðun á íþróttamönnum vorum
að tilhlutuir I. S. í. Hefir skoðun þessi
leitt ýmislegt í ljós, sem skemmtilegt
er að athuga. Við skulum t. d. taka
aldurinn.
Af 600 skoðuðum íþróttamönnum
hafa flestir verið á aldrinum 15—20
ára eða 280, þá hafa verið 240 á aldr-
inum 20—25 ára, 68 á aldrinum 25—
80 ára, en þegar yfir þrítugt kemur
eru íþróttamennirnir og konur aðeins
sára fáir.
Ef við tökum þyngd íþróttamanna
og hæð, þá kemur í ljós, að á aldrinum
15—20 ára er meðalþyngd 62,0 kg, en
meðalhæð 169,2 cm. Á aldrinum 20—
25 ára er meðalþyngd 67,9 kgr., en
meðalhæð 170,1 cm., og eldri en 25
UNGA ÍSLAND
Eign RauíSa Kross íslands.
Kemur út í 16 sí'öu heftum, 10 sinnum á ári.
10. heftiö er vandaö jólahefti.
Skilvísir kaupendur fá auk þess
Almanak skólabarna.
VerÖ blaðsins er kr. 3,00 árg'angurinn.
Gjalddagi blaösins er 1. apríl.
Ritstjórn annast:
Amgrimur Kristjánsson og
Jakob Hafsttiin.
Afgreiðslu og innheimtu hlaösins annast
skrifstofa Rauða Krossins, Hafnarstræti 5,
herbergi 27 og 28 (Mjólkurfélagshúsið). —
Skrifstofutími kl. 1—4. Póstbox 927.
Prentað 1 ísafoldarprentsmiðju.
ára verður meðalþyngd 70,3 kg. og
meðalhæðin aðeins 172,1 cm. Af þessu
sjáum við, að íþróttamenn vorir eru
fremur lágir vexti, enda mun það al*
gengt um íþróttamenn víða um heim.
Berklaveiki í ætt íþróttamanna:
Af skoðuðum íþróttamönnum áttu
berklaveika móður 17 íþróttamenn,
berklaveikan föður 11 íþróttamenn og
berklaveik systkini 39 íþróttamenn.
Nokkur heilræði
Forðastu óhreinindin undir nöglum
þínum, og um fram allt nagaðu elcki á
þér neglurnar, því að á því verða þær
bæði ljótar og þannig geta sóttkveikjur
borist inn í líkama þinn.
• •
Ef þú þarft að hósta eða hnerra með-
an þú matast, þá gerðu það í vasaklút
þinn og snúðu þér frá borðinu. Það er
voðalegur sóðaskapur að hnerra og
hósta yfir matarborðið.
• O
Þvoðu þér jafnan um hendur fyrir
máltíðir.