Unga Ísland - 01.01.1941, Side 7
u^l5LfíNQ
XXXVI. ÁRO. I. HEFTI JAN.-FEBR. 1941
íslenzk nútímaljóðskáld X.
Jóhann Frímann
Jóhann er fæddur að Hvammi í Langa-
dal í Húnavatnssýslu 27. nóv. 1906. —
Hann stundaði um í Gagnfræðaskóla
Akureyrar og lauk þaðan prófi vorið
1923. Fór því næst utan og stundaði nám
við lýðháskólann í Askov í Danmörku,
einnig dvaldi hann um skeið við nám
í klaustrinu í Clairvaux í Luxemburg
og víðar. Jóhann Frímann er víðförull
mjög og hefir ferðazt allmikið um
Norður- og Mið-Evrópu, einnig ferðað-
ist hann um Finnland og Rússland
(1933). — Árið 1928 var Jóhann ráð-
inn skólastjóri við Iðnskóla Akureyrar
og gegndi hann því starfi til haustsins
1938, er hann tók við stjórn héraðs-
skólans í Reykholti í Borgarfirði, og
hefir verið þar skólastjóri síðan.
Eftir Jóhann Frímann hafa komið út
þrjár bækur: Mansöngvar til Miðalda
(ljóð) 1929, Nökkvar og ný skip (ljóð)
1934 og Fróðá (leikrit) 1938.
Með ljóðabókum sínum hefir Jóhann
unnið hylli íslenzkra Ijóðaunnenda, og
víst er um það, að eftir að hafa. lesið
þær, munu þeir ekki láta þau ljóð ólesin
framhjá sér fara, er hann kann að birta
í framtíðinni. Leikrit hans, Fróðá, var
sýnt af Leikfélagi Akureyrar á jólun-
um 1938 og síðan mörgum sinnum fram
eftir þeim vetri. Hlaut það hinar beztu
viðtökur. — Þetta kvæði, sem hér fer á
eftir, er tekið úr bókinni Nökkvar og
ný skip.
UNGA ÍSLAND
1