Unga Ísland - 01.01.1941, Side 17
þessu ódæði var lokið, leitaði hann
verndar hjá foreldrum sínum.
Og honum veitti ekki af því. Bræður
hans, einkum ritstjórinn voru ægilega
reiðir. En foreldrar þeirra tóku mál-
stað litla drengsins og sögðu, að hann
ætti enga refsingu skilið, fyrst hin
hefðu verið að stríða honum.
Seinna þótti Hudson mjög leitt að
svona skyldi fara, því blikkdósin hefði
vel getað orðið til þess að hann hefði
nokkru fyrr farið að skrifa um fuglana.
Því það átti eftir að verða æfistarf
hans. Áhugi hans fyrir fuglunum var
jafn mikill á fullorðinsárunum og hann
hafði verið þegar hann var barn.
Hann átti lengi heima á Englandi og
reyndi að hafa ofan af fyrir sér með
ritstörfum. Fyrstu árin voru mjög erfið
og þau hjónin áttu oft ekki málungi
matar.
En svo fóru rit hans allt í einu að
vekja athygli og hann var talinn meðal
beztu náttúrufræðinga og rithöfunda.
Eftir að bók hans „Grænu híbýlin" kom
út, töldu sumir ritdómarar hann vera
meðal snjöllustu rithöfunda samtíðar-
innar.
En allt hól þeirra virtist aldrei stíga
til höfuðs honum. Hann lifði alltaf jafn
rólegu, iðjusömu og látlausu lífi og
hann mun hafa gert meðan hann var
bara einn af Hudsonsstrákunum á
gresjunni í Suður-Ameríku.
(A. J. þýddi úr American Junior Red
Cross Neivs) .
Bifreiðasalinn: Viljið þér ekki kaupa
yður vörubíl ?
Bóndinn: Nei, ég er nýbúinn að
kaupa kú.
Bifreiðasalinn: En ekki getið þér far-
ið á henni til bæjarins.
Bóndinn: Nei, en það er ekki heldur
hægt að mjólka bílinn.
Sigga: Gunnar er alltaf að tala um,
hvað ég sé yndislega falleg og skynsöm.
Anna: Hamingjan hjálpi þér.... Og
þú ætlar að giftast manni, sem skrökv-
ar svona hroðalega að þér.
HAUSTKVÆÐI
Á haustin blöðin blikna
og blæðir út á ný,
allir vinir vorsins
vikna yfir því.
Landið klaka klæðist,
klettar, fjöii og gil,
og grimmur gustur læðist
gegnum bóndans þil.
Skepnur heim sig hypja
að húsum bænda þá,
úr fersku fjallalofti
fram’ við vötnin blá.
pær vita að bráðum vetrar
og velli hylur fönn.
— En seinna kemur sumar,
er sviptir burtu hrönn.
Sveinn Kristinsson. 15 ára.
UNGA ÍSLAND
11