Unga Ísland - 01.01.1941, Qupperneq 17

Unga Ísland - 01.01.1941, Qupperneq 17
þessu ódæði var lokið, leitaði hann verndar hjá foreldrum sínum. Og honum veitti ekki af því. Bræður hans, einkum ritstjórinn voru ægilega reiðir. En foreldrar þeirra tóku mál- stað litla drengsins og sögðu, að hann ætti enga refsingu skilið, fyrst hin hefðu verið að stríða honum. Seinna þótti Hudson mjög leitt að svona skyldi fara, því blikkdósin hefði vel getað orðið til þess að hann hefði nokkru fyrr farið að skrifa um fuglana. Því það átti eftir að verða æfistarf hans. Áhugi hans fyrir fuglunum var jafn mikill á fullorðinsárunum og hann hafði verið þegar hann var barn. Hann átti lengi heima á Englandi og reyndi að hafa ofan af fyrir sér með ritstörfum. Fyrstu árin voru mjög erfið og þau hjónin áttu oft ekki málungi matar. En svo fóru rit hans allt í einu að vekja athygli og hann var talinn meðal beztu náttúrufræðinga og rithöfunda. Eftir að bók hans „Grænu híbýlin" kom út, töldu sumir ritdómarar hann vera meðal snjöllustu rithöfunda samtíðar- innar. En allt hól þeirra virtist aldrei stíga til höfuðs honum. Hann lifði alltaf jafn rólegu, iðjusömu og látlausu lífi og hann mun hafa gert meðan hann var bara einn af Hudsonsstrákunum á gresjunni í Suður-Ameríku. (A. J. þýddi úr American Junior Red Cross Neivs) . Bifreiðasalinn: Viljið þér ekki kaupa yður vörubíl ? Bóndinn: Nei, ég er nýbúinn að kaupa kú. Bifreiðasalinn: En ekki getið þér far- ið á henni til bæjarins. Bóndinn: Nei, en það er ekki heldur hægt að mjólka bílinn. Sigga: Gunnar er alltaf að tala um, hvað ég sé yndislega falleg og skynsöm. Anna: Hamingjan hjálpi þér.... Og þú ætlar að giftast manni, sem skrökv- ar svona hroðalega að þér. HAUSTKVÆÐI Á haustin blöðin blikna og blæðir út á ný, allir vinir vorsins vikna yfir því. Landið klaka klæðist, klettar, fjöii og gil, og grimmur gustur læðist gegnum bóndans þil. Skepnur heim sig hypja að húsum bænda þá, úr fersku fjallalofti fram’ við vötnin blá. pær vita að bráðum vetrar og velli hylur fönn. — En seinna kemur sumar, er sviptir burtu hrönn. Sveinn Kristinsson. 15 ára. UNGA ÍSLAND 11

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.