Unga Ísland - 01.01.1941, Síða 18

Unga Ísland - 01.01.1941, Síða 18
RANKA GAMLA í SKÚRNUM Við höfðum verið að leika okkur í boltaleik, en leikurinn stöðvaðist við það að Manni hrópaði: — Hæ gaman! Sjáið þið ekki að þarna kemur hún Ranka gamla í Skúrn- um. Ha? — Jú, jú, hrópuðum við hver í kapp við annan. — Nú skulum við erta þá gömlu! — Sú skal fá á baukinn. — — Hún Ranka róa, bætti einhver við. Ranka var skotspónn okkar drengj- anna í þorpinu. Og þegar hún kom eftir aðalgötunni, þá var þegar kominn heill herskari af drengjum, sem ertu hana, þangað til hún fór inn í eitthvert hús- ið. Og við brugðum ekki heldur út af venjunni í þetta sinn. — Halló, Grýla! Hrópaði Steini. — Ætlarðu ekki að anza? spurði Jón. — Hæ, hún tekur í nefið og tyggur skro, alveg eins og hann Simbi gamli i Krónni. — Já, þau eru tilvalin hjón! — Ertu kannske að heimsækja hann, Ranka mín? — Hæ, þú færð engan mann héðan af, Ranka, nema kannske hann Simba. Þú ert orðin svo gömul og ljót. — Heldurðu það? Ekkert svar, heldur snýr hún sér við og hvessir á okkur augun. — Svo hverf- ur hún inn um dyrnar á næsta húsi. — Hún var orðin vond, sagði Steini, og setti upp spekingssvip. Stjórnlaus hlátur! Svo liðu nokkrir dagar, en ekki sást Ranka gamla ganga eftir götunni, eins og hún var vön. — Hún er hrædd við okkur, sagði Steini. En við hlógum og sögðum ekki neitt. Svo kom Steini með ráð, til þess að ganga úr skugga um það, hvort hún væri heima: — Við skjótum bara púðurkerlingu inn til hennar í kvöld. Það má segja, að þessi tillaga fékk byr undir báða vængi, og um kvöldið héldum við allir í halarófu út að Skúrn- um hennar Rönku. — Við skjótum henni í gegnum strompinn, sagði ég. Svo biðum við hjá glugganum með öndina í hálsinum á meðan Steini klifraði upp á skúrþakið með töluverðum gauragangi. Við sáum hann kveikja í þræðinum og hendast svo niður aftur. Eitt andartak var þögn. Alit í einu kvað við ógurlegur hvellur og rétt á eftir var komið við útidyrahurðina. — Og áður en við gátum flúið út í myrkr- ið, var Ranka gamla komin út til okk- ar. — Hvað eruð þið að gera hérna, drengir? spurði hún. — Hæ-hæ. Sú er-------, tautaði Steini. En við sögðum honum að þegja. — Nú, svarið þið, sagði hún og hvessti á okkur augun. — Við vorum svo sem ekkert sér- stakt að gera, sagði Jónas aumingjaleg- ur, og við urðum allir smeykir á svip. — Ekki það. En nú ætla ég bara að spyrja ykkur að einu: Hvaða ástæðu UNGA ÍSLAND 12

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.