Unga Ísland - 01.01.1941, Page 19
hafið þið til þess að láta mig ekki í
friði. Vitið þið kannske ekki, að það er
ljótt að hræða gamalt fólk, og ég tala
nú ekki um varnarlausa gamla konu,
eins og ég er. Það er ekki hægt að
sofa í friði á næturnar, hvað þá meira.
---------Hún kom nær okkur og rödd-
in varð að grátklökku hvísli: — Ég
vona, að þið skiljið þetta, drengir. Þið
eruð varla svo spilltir.... Hún þagnaði
og horfði út í myrkrið.
Við höfðum helzt aldrei heyrt Rönku
segja nokkurt orð við okkur fyrr, og
urðum því bæði undrandi og smeykir.
— Jæja, drengir, þið segið ekkert,
sagði hún og stór glitrandi tár runnu
niður hrukkóttar kinnar hennar.
— Ég fyrirgef ykkur, drengir mínir,
það, sem þið hafið gert mér á móti, og
verið þið svo alltaf góðir drengir. Að
svo mæltu staulaðist hún inn í skúr-
inn.
— Hún grét, sagði Árni.
Við þögðum og héldum út í myrkrið,
skömmustulegir á svip.
Og síðan hefur Ranka gamla fengið-
að vera í friði.
Ólafur Þ. Inyvarsson.
VERNDUM MÓÐURMÁLIÐ
(Flutt á fundi í ungliðadeildinni NJÁLL í Austurbæjarskólanum, 5. des. 194-0).
Kæru félagar!
Ég ætla að tala við ykkur um íslenzk-
una, móðurmálið okkar. Ég hygg, að
fáir eigi eins snjallt og fallegt móður-
mál og við íslendingar. En því miður
tölum við það ekki alltaf nógu rétt. —
Sum börn tala svona: „Á ég að segja
þér, þegar ég gekk niður Laugaveginn
í gær, gekk hinu megin á fortóinu svo
agalega smart stelpa. Hún var svo mik-
ið lekker“.
Einnig hefi ég heyrt suma segja:
„Mér hlakkar svo mikið til að komast í
berjatúrinn. Þú getur bara ekki hugsað
þér, hvað það verður gaman“.
Ég hefi leiðrétt orðið „klósett“ fyrir
mörgum börnum og sagt þeim að það
ætti að segja salerni, en sum þeiiTa
hafa sagt: „Oj bara, salerni. Það er svo
púkalegt". •
Ég spyr: Eigum við ekki að setja á
stofn málvöndunarnefnd? Hún ætti að
hafa það starf, að leiðrétta ýmsar mál-
leysur fyrir okkur hin í bekknum. Á
fundunum gefur formaður málvöndun-
unarnefndar skýrslu yfir það, hve
margir hafa vanrækt að tala móðurmál-
ið rétt, en ekki skal getið um, hverjir
það eru, sem gera það. Nefndinni ber
að gefa skýrslu um, hverjar ambög-
urnar eru og leiðrétta þær fyrir bekkn-
um.
Svo vona ég, að okkur takizt vel að
halda fallega móðurmálinu okkar
hreinu.
Sigríóur Löve.
11 ára.
UNGA ÍSLAND
13