Unga Ísland - 01.01.1941, Page 27

Unga Ísland - 01.01.1941, Page 27
TIL LESENDANNA . . Þetta blað, sem þið fáið nú í hendur, er nokkuð seint á ferðinni sem janúar- blað. Var því það ráð tekið, að láta tvö blöð fylgjast að. Sú ástæða var til þessa, að um þessi nýliðnu áramót þurfti út- gáfustjórn blaðsins að gera ýmsar ráð- stafanir viðvíkjandi útkomu þess á þessu ári, semja um prentun og fleira. Töfðust þeir samningar fram yfir miðj- an janúar og þess vegna var þetta rcið tekið. Hins vegar hafa nú tekizt samn- ingar við prentsmiðjuna, er tryggja það, að hér eftir kemur blaðið út 10. hvers mánaðar. Munu allir vinir blaðs- ins fagna því. Blaðið þakkar ýms hlýleg og vin- gjarnleg bréf, er því hafa borizt. Af þeim bréfum virðist mega ráða, að les- endur hafi yfirleitt verið ánægfíir með efni blaðsins síðastliðið ár. Það má ef til vill geta þess, að margir hafa látið í Ijósi ánægju yfir framhaldssögunni og þáttunum um Ijóðskáldin og eins hafa ýmsir veitt athygli sögum Ólafs Þ. Ingvarssonar og Ólafíu Ólafsdóttur. Blaðið þakkar ennfremur öllum þeim, er sent hafa því efni til birtingar. En geta vill það þess, að það endursendir ekki handrit, er það einhverra hluta vegna telur sig ekki geta birt. Sé það ætlun sendanda, verður það að vera sérstaklega framtekið og einnig þarf greinilegt heimilisfang að fylgja. Ann- ars er rétt að taka það fram, að þeir sem senda blaðinu efni til birtingar, bréf viðvikjandi efni þess og slíkt, ættu að senda það beint til ritstjóranna, en ekki til afgreislunnar. Heimilsföng rit- stjóranna eru: Sigurður Helgason, Víf- ilsgötu 2 og Stefán Jónsson E'iríksjötu 25, Reykjavík. UNGA ÍSLAND Þess er fastlega vænzt, að ungliða- deildirnar láti blaðinu í té fréttir af starfsemi sinni við og við. Gætu ung- liðadeildirnar, sem nú munu starfa víðsvegar um land, ekki komið á sam- bandi sín á milli? Segjum t. d., að fé- lagar í ungliðadeild á Eskifirði tækju sig til og sendu greinar um átthaga sína, lýsingu á landslagi, atvinnuveg- um, félagsstarfsemi o. s. frv. Greinun- um létu þeir fylgja myndir, teikningar, sögur og kvæði, eftir því sem við ætti. Límdu þetta síðan inn í hentugar bæk- ur eða möppur og sendu síðan til ann- arra ungliðadeilda, t. d. á ísafirði og gagnkvæmt. Þessir staðir eru aðeins nefndir sem dæmi. Einnig mætti senda þétta til stjórnar U. R. K. I. og fá hana til að útvega samband við einhverja ungliðadeild. Það er alkunna, að ung- liðadeildir Rauðakrossins víðsvegar um heim halda slíkri starfsemi uppi, eink- um milli landa. En vitanlega gæti þetta einnig átt sér stað innan lands. Er ekki að efa, að þetta yrði öllum þátttakend- um bæði til gagns og gleði. Þvi þá ekki að gera þetta? Þetta var annars útúrdúr. Að síðustu þetta til allra vina Unga íslands: Send- ið blaðinu umfram allt hér eftir eins og hingað til efni til birtingar, ennfrem- ur bréf, aðfinnslur ef þið eruð óánæglð- ir, og allt það, er þið haldið að blaðinu megi að gagni verða. Aldrei hefir því riðið meira á aðstoð vina sinna en nú. Gerið Unga fsland að vinsælasta, fjöl- lesnasta og bezta unglingablaði, er út hefir komið á ísl/indi. S. J. 21

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.